Nýjustu færslur

miðvikudagur, 21. sep 2011

40 ára afmæli félagsins

Laugardaginn 1. október nk. mun Sagnfræðingafélag Íslands fagna 40 ára afmæli sínu. Af því tilefni mun félagið standa fyrir málþingi í Öskju náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, nánar tiltekið í stofu 132, undir yfirskriftinni: Hvað er (mis)notkun sögunnar?

 

Fyrirlesarar verða:

Íris Ellenberger

Guðni Th. Jóhannesson

Lára Magnúsardóttir

Guðmundur Hálfdanarson

 

Dagskráin hefst kl. 13.00 og lýkur kl. 16.30.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimilaður meðan húsrými leyfir

 

Síðan vill stjórn félagsins bjóða öllum félagsmönnum til afmælisfagnaðar og að þiggja léttar veitingar milli kl. 17.00 og kl. 19.00 í húsakynnum Reykjavíkur-Akademíunnar,  JL-húsinu, Hringbraut 121.

 

 

 

 

sunnudagur, 22. maí 2011

Fyrirlestrarefni veturinn 2011-2012

Stjórn félagsins hefur ákveðið að yfirskriftir fyrir næsta vetur. Fyrir jól verður efnið Hvað er (mis)notkun sögunnar? en eftir hátíðarnar verður spurt Hvað eru minningar?

Þeir sem hafa áhuga á að flytja erindi undir þessum yfirskriftum eru beðnir um að senda formanni félagsins, Vali Frey Steinarssyni, póst þar sem fram kemur titill erindis og umfjöllunarefni.

miðvikudagur, 11. maí 2011

Hver á yfirskrift næsta vetrar að vera?

Líkt og á síðasta ári býður Sagnfræðingafélagið nú félagsmönnum að kjósa um yfirskrift hádegisfyrirlestra næsta vetrar. Vinsamlegast merkið við þann/þá möguleika sem nefndir eru hér að neðan eða setjið inn nýja möguleika.

Gert er ráð fyrir að kosning standi yfir í eina viku og eru því allir áhugasamir beðnir um að koma sinni skoðun á framfæri hið fyrsta í þessari leiðbeinandi kosningu.

 

Create your free online surveys with SurveyMonkey, the world's leading questionnaire tool.

þriðjudagur, 19. apr 2011

Hlaðvarp: Forystulið þjóðarinnar?

Fyrr í dag, 19. apríl, hélt Hafdís Erla Hafsteinsdóttir síðasta erindið í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Fyrirlestur Hafdís heitir "Forystulið þjóðarinnar? Kvennaíþróttir, karlmennska og þjóðerni" og geta þeir sem misstu af erindi hennar hlustað á það hér.

fimmtudagur, 14. apr 2011

Forystulið þjóðarinnar?

Hafdís Erla Hafsteinsdóttir heldur fyrirlestur sinn "Forystulið þjóðarinnar? Kvennaíþróttir, karlmennska og þjóðerni" næstkomandi þriðjudag, 19. apríl, kl. 12.05. Erindið er lokaerindi fyrirlestraraðarinnar Hvað er kynjasaga?

Fyrirlesturinn fjallar um samspil íþrótta, þjóðernis og kvenna á fyrstu áratugum tuttugustu aldar.  Íslenska íþróttahreyfingin varð til á tímum sjálfstæðisbaráttunnar þegar íslensk þjóðernisorðræða myndaðist. Sú sjálfsmynd sem íþróttahreyfingin dró upp af sér leitaði mikið í orðræðu sjálfstæðisbaráttunnar. Litið var á íþróttir sem þátt í að endurreisa íslenska menningu, sem átti að hafa legið í láginni frá þjóðveldisöld. Þetta gaf íþróttum aukið vægi og var notað til að styrkja hugmyndina um þjóð meðal almennings.

Hlutur íþróttakvenna í þessari sjálfsmyndarsköpun var rýr og þær voru ekki hluti af þeirri ímynd sem dregin var upp af íþróttamanninum sem tákngerving þjóðarinnar. Sú ímynd var nær alfarið sniðin af körlum og gerði sjaldnast ráð fyrir konum. Í fyrirlestrinum verður þjóðernisleg sjálfmyndarsköpun íslensku íþróttahreyfingarinnar rakin á fyrstu áratugnum tuttugustu aldar og staða kvennaíþrótta innan þess ramma skoðuð.

Fyrirlesturinn verður í sal Þjóðminjasafns Íslands og er ókeypis og öllum opin meðan húsrúm leyfir.

föstudagur, 8. apr 2011

Afrakstur aðalfundar

Sagnfræðingafélag Íslands hélt aðalfund í sal Þjóðskjalasafns Íslands þriðjudaginn 29. mars síðastliðinn. Á fundinum las formaður Skýrsla stjórnar Sagnfræðingafélags Íslands fyrir árið 2010 og gjaldkeri kynntiÁrsreikningur Sagnfræðingafélagsins 2010. Þeir sem vilja fræðast frekar um fundinn er bent á fundargerð_sagnfræðingafélagið_29032011.

Eins og áður hefur komið fram flutti Lára Magnúsardóttir erindi að loknu venjulegum aðalfundarstörfum og má nálgast upptöku af því á netinu.

Hlaðvarp: Frá mæðrahyggju til frjálshyggju

Síðastliðinn þriðjudag, 5. apríl, héldu Sigríður Matthíasdóttir, Þorgerður Einarsdóttir og Guðný Gústafsdóttir  erindi sitt "Frá mæðrahyggju til frjálshyggju. Hugmyndir um opinbera þátttöku kvenna 1900-2010" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Þeir sem misstu af erindi Sigríðar, Þorgerðar og Guðnýjar geta hlustað á það hér.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


Gammabrekka

Við minnum á póstlista sagnfræðinga. Þar fara daglega fram líflegar umræður um spennandi málefni.

Skráðu þig á Gammabrekku.

Random image

Viðburðir

« maí, 2012 »
s m þ m f f l
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Næstu viðburðir


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is