Síðastliðinn þriðjudag, 5. apríl, héldu Sigríður Matthíasdóttir, Þorgerður Einarsdóttir og Guðný Gústafsdóttir erindi sitt "Frá mæðrahyggju til frjálshyggju. Hugmyndir um opinbera þátttöku kvenna 1900-2010" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Þeir sem misstu af erindi Sigríðar, Þorgerðar og Guðnýjar geta hlustað á það hér.
Þú ert að lesa "Hlaðvarp: Frá mæðrahyggju til frjálshyggju", grein á Sagnfræðingafélag Íslands.
Sent klukkan:
8. 4. 2011 14:44
.
Höfundur:
Karl Jóhann .
Flokkað sem:
Hlaðvarp .
Varanleg slóð á þessa grein er:
http://www.sagnfraedingafelag.net/2011/04/08/14.44.43/
Sigríður Matthíasdóttir, Þorgerður Einarsdóttir og Guðný Gústafsdóttir munu halda fyrirlestur sinn "Frá mæðrahyggju til frjálshyggju. Hugmyndir um opinbera þátttöku kvenna 1900-2010" í sal Þjóðminjasafns Íslands næstkomandi þriðjudag, 5. apríl kl. 12:05. Erindið er hluti af fyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga?
Í fyrirlestrinum verður leitast við að greina samspilið milli kvenfrelsisbaráttu og birtingamynda kvenleikans í íslensku þjóðfélagi á tveimur ólíkum söguskeiðum, við upphaf 20. aldar og upphaf 21. aldar. Bæði tímaskeiðin eru mikil umbreytingaskeið í sögu kvenfrelsis, og bæði hafa kallað á sterk viðbrögð og andsvar samfélagsins, jafnvel bakslag.
Í fyrirlestrinum verður umræðan um þátttöku kvenna í opinberum nefndum, ráðum og stjórnum skoðuð og spurt að hvaða leyti sé að finna hliðstæður milli orðræðna í byrjun 20. aldar og í okkar samtíma. Því verður haldið fram að umræðan í byrjun 20. aldar hafi kallað fram mæðrahyggju sem takmarkaði aðgang kvenna að opinberu lífi. Á síðustu áratugum hafi umræðan hins vegar einkennst af frjálshyggjuhugmyndum um meint kynhlutleysi sem engu að síður smættar konur niður í kyn sitt. Tilgáta okkar er sú að þetta séu í báðum tilvikum andsvör við kvenréttindabaráttunni og auknum landvinningum kvenna á opinberu sviði samfélagsins.
Aðgangur er ókeypis og öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Þú ert að lesa "Frá mæðrahyggju til frjálshyggju. Hugmyndir um opinbera þátttöku kvenna 1900-2010", grein á Sagnfræðingafélag Íslands.
Sent klukkan:
1. 4. 2011 10:46
.
Höfundur:
Karl Jóhann .
Flokkað sem:
Fréttir .
Varanleg slóð á þessa grein er:
http://www.sagnfraedingafelag.net/2011/04/01/10.46.25/
Síðastliðinn þriðjudag, 29. mars, var aðalfundur félagsins haldinn í sal Þjóðskjalasafns Íslands. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum hélt Lára Magnúsardóttir fyrirlestur sem nefnist "Sifjafræði rannsóknarskýrslu og afsökunarbeiðni. Genin úr bannfæringu." Vel var mætt á erindið en nú má hlusta á fyrirlesturinn hér.
Þú ert að lesa "Hlaðvarp: Aðalfundarerindi", grein á Sagnfræðingafélag Íslands.
Sent klukkan:
31. 3. 2011 9:19
.
Höfundur:
Karl Jóhann .
Flokkað sem:
Hlaðvarp .
Varanleg slóð á þessa grein er:
http://www.sagnfraedingafelag.net/2011/03/31/09.19.15/
Í gær, 22. mars, hélt Svanur Pétursson erindi sitt "Hver er munurinn á kynjasögu og kynferðissögu?" hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Þeir sem misstu af erindi Svans geta hlustað á það hér.
Þú ert að lesa "Hver er munurinn á kynjasögu og kynferðissögu?", grein á Sagnfræðingafélag Íslands.
Sent klukkan:
23. 3. 2011 13:34
.
Höfundur:
Karl Jóhann .
Flokkað sem:
Hlaðvarp .
Varanleg slóð á þessa grein er:
http://www.sagnfraedingafelag.net/2011/03/23/13.34.20/
Þriðjudaginn 29. mars næstkomandi heldur Sagnfræðingafélag Íslands aðalfund sinn í Þjóðskjalasafni Íslands kl. 19:00.
Dagskrá:
1. Ársskýrsla stjórnar kynnt og lögð fram til samþykktar.
2. Endurskoðaðir ársreikningar félagsins kynntir og lagðir fram til samþykktar.
3. Ákvörðun árgjalds fyrir næsta starfsár.
4. Lagabreytingar.
5. Kjör stjórnar. Kjör tveggja endurskoðenda reikninga og tveggja fulltrúa í Landsnefnd íslenskra sagnfræðinga til eins árs.
6. Önnur mál.
Boðið verður upp á léttar veitingar eftir að aðalfundastörfum lýkur.
kl. 20.00 mun síðan Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur flytja fyrirlestur sinn: „Sifjafræði rannsóknarskýrslu og afsökunarbeiðni. Genin úr bannfæringu.“
Í erindinu talar Lára um á hvaða hátt niðurstöður rannsókna hennar á miðaldasögu varpa ljósi á pólitíska umræðu samtímans. Hún beinir sjónum sínum að aðferðum til að leysa deilur og ljúka ágreiningsmálum, sérstaklega að hugtakakerfi skriftasakramentisins og bannfæringar sem er grunnurinn að vestrænum refsirétti. Saga hugtakanna sýnir nýja hlið á opinberri afsökunarbeiðni, rannsóknarskýrslum, hugtakinu „græðgi“ og ef til vill fleiri atriðum, svo sem framvirkum rannsóknarheimildum og siðanefndum.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Þú ert að lesa "Aðalfundur", grein á Sagnfræðingafélag Íslands.
Sent klukkan:
21. 3. 2011 8:51
.
Höfundur:
Karl Jóhann .
Flokkað sem:
Fréttir .
Varanleg slóð á þessa grein er:
http://www.sagnfraedingafelag.net/2011/03/21/08.51.49/
Svanur Pétursson mun halda fyrirlestur sinn"Hver er munurinn á kynjasögu og kynferðissögu?" í sal Þjóðminjasafns Íslands 22. mars kl. 12.05. Erindið er hluti af fyrirlestraröðinni Hvað er kynjsaga?
Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig hugmyndir um kyngervi geta verið mótaðar af því hvað telst vera siðferðislega „rétt“ í kynferðismálum á hverjum tíma fyrir sig. Til dæmis um það verður litið á umræðuna um kynfræðslu í Vestur-Þýskalandi á sjötta áratug síðustu aldar, þar sem talið var að mikilvægasti hluti kynfræðslu væri að kenna börnum og unglingum hvernig þau gætu best uppfyllt framtíðarhlutverk sín sem karlmenn/feður eða konur/mæður.
Í fyrirlestri mun Svanur meðal annars líta til tveggja áhrifamikilla greina frá níunda áratug síðustu aldar eftir sagnfræðinginn Joan Scott, „Gender as a Useful Category of Historical Analysis“ og mannfræðinginn Gayle Rubin, „Thinking Sex: Towards a Radical Theory of the Politics of Sexuality.“ Joan Scott hvatti sagnfræðinga til að leggja gagnrýnið og sögulegt mat á kyngervi, hvað teljist vera karlmannlegt og hvað kvenlegt. Gayle Rubin, hélt því hins vegar fram að femínismi, sem var að miklu leyti grunnurinn að verkefni Scott, gæti ekki útskýrt kynferðislega undirokun ákveðinna kynferðishópa, líkt og samkynhneigðra, kynskiptinga, og svo framvegis.
Aðgangur er ókeypis og öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Þú ert að lesa "Hver er munurinn á kynjasögu og kynferðissögu?", grein á Sagnfræðingafélag Íslands.
Sent klukkan:
21. 3. 2011 8:45
.
Höfundur:
Karl Jóhann .
Flokkað sem:
Fréttir .
Varanleg slóð á þessa grein er:
http://www.sagnfraedingafelag.net/2011/03/21/08.45.22/
Í gær, 8. mars, hélt Páll Björnsson erindi sitt "Fjallkarl Íslands: Jón Sigurðsson forseti" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Fyrirlesturinn var afar vel sóttur en nú geta fleiri heyrt í Páli því erindið er nú aðgengilegt hér á netinu. Kynningu erindis vantar fram á upptökuna en vonandi kemur það ekki að sök.
Þú ert að lesa "Hlaðvarp: Fjallkarl Íslands Jón Sigurðsson forseti", grein á Sagnfræðingafélag Íslands.
Sent klukkan:
9. 3. 2011 12:56
.
Höfundur:
Karl Jóhann .
Flokkað sem:
Hlaðvarp .
Varanleg slóð á þessa grein er:
http://www.sagnfraedingafelag.net/2011/03/09/12.56.03/