Strandhögg 12. – 14. júní 2009

Landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðinga á Íslandi í samstarfi við Þjóðfræðistofu og ReykjavíkurAkademíuna.

Nú, um áratug frá fyrstu Landsbyggðarráðstefnu félaganna tveggja, er efnt til ráðstefnu með breyttu sniði í samstarfi við Þjóðfræðistofu og ReykjavíkurAkademíuna. Ráðstefnan verður haldin á Ströndum, þar sem Þjóðfræðistofa hefur höfuðstöðvar sínar, helgina 12. - 14. júní 2009. Með þátttöku heimamanna og valinkunnra fræðimanna verður lögð áhersla á framsögu á vettvangi – allt frá Konungsvörðu og norður í Krossneslaug.

Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Strandhögg“ en umfjöllunarefnið tengsl Íslands við umheiminn; dreifbýlis og höfuðstaðar; norðurs og suðurs; jaðars og miðju, bæði í staðbundnu samhengi sem þverþjóðlegu. Meðal annars verður vikið að blómlegri síðari alda handritamenningu á jaðri Evrópu; iðkun ímynda norðursins á erlendri grundu; iðnaði erlendra þjóða á Íslandi 17. aldar í óþökk konungs; förumönnum og þjóðfræði á mörkum mennskunnar; og framtíð fræða og lista á landsbyggðinni. Auk þess verður sagt frá þjóðfræði og sögu Stranda. Ráðstefnugestir munu gista á Hólmavík og nágrenni, en tekið verður vel á móti þeim bæði á Sauðfjársetri og Þjóðfræðistofu að ógleymdum öndvegisveitingastaðnum Café Riis. Þá verður farið í vettvangsferð norður í Árneshrepp og fluttir fyrirlestrar á hinum ýmsu áföngum ferðarinnar.

Dagskrárrit ráðstefnunnar er nú aðgengilegt en gistimöguleika má einnig skoða.

Skráning á ráðstefnuna fer fram á netfanginu irisel@hi.is. Ráðstefnugestir sjá sjálfir um að panta gistingu að eigin vali með því að hafa samband við staðarhaldara sem taldar eru upp undir gistimöguleikum. Taka þarf fram að pöntunin sé í tengslum við ráðstefnuna Strandhögg.

Verði er stillt í hóf. Þátttökugjald er 5000 kr. og eru allar rútuferðir (frá og til Reykjavíkur og á milli ráðstefnustaða) þar innifaldar auk grills á föstudagskvöldi, hádegisverðs og kaffis á laugardeginum og hádegisverðar á sunnudeginum.

Þessa fínu dagskrá mun enginn félagsmaður láta fram hjá sér fara - bókið strax.


Þessi síða

Hornafjarðarmáni

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Val Frey Steinarsson, formann Sagnfræðingafélagsins, í síma 866-3131 eða í gegnum tölvupóstfangið valur.steinarsson[hjá]gmail.com

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 861-4832 - Tölvupóstur: irisel@hi.is