Gammabrekka

Gammabrekka er tölvupóstlisti Sagnfræðingafélags Íslands. Þar gefst fólki tækifæri til að tjá sig um hagsmunamál sagnfræðinga, jafnframt því sem að listinn er vettvangur umræðna um fræðileg álitamál. Þar birtast einnig tilkynningar um fundi og ráðstefnur, sýningar og útgáfur, styrki og laus störf, svo fátt eitt sé nefnt. Þessar tilkynningar koma ekki aðeins frá Sagnfræðingafélaginu sjálfu heldur einnig tengdum fræðafélögum, háskóla- og menningarstofnunum, ásamt skjala- og listasöfnum. Listinn var stofnaður árið 1998 og hefur síðan verið mikilvægur þáttur í starfi félagsins. Á sínum tíma var efnt til samkeppni um nafn á hann og varð prófessor Helgi Þorláksson hlutskarpastur, en Gammabrekka er örnefni við Odda á Rangárvöllum.

Auðveldast er að skrá sig á Gammabrekku með því að fara á vefslóðina
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/gammabrekka (þar eru líka leiðbeiningar um afskráningu). Efni inn á listann er síðan sent á netfangið gammabrekka@hi.is

Vinsamlega forðist að nota viðhengi við skeytin sem þið sendið inn á Gammabrekku. Þá er rétt að minna á að óheimilt er að senda keðjubréf inn á listann og einnig viljum við hvetja fólk til að áframsenda ekki tilkynningar um vírusa nema að áður hafi verið gengið úr skugga um að raunveruleg hætta sé á ferðum. Leiki vafi á því hvort tilkynning eigi erindi á póstlistann ber hlutaðeigendum að setja sig í samband við stjórn félagsins.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Val Frey Steinarsson, formann Sagnfræðingafélagsins, í síma 866-3131 eða í gegnum tölvupóstfangið valur.steinarsson[hjá]gmail.com

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through the Valur Freyr Steinarsson: valur.steinarsson[hjá]gmail.com or via telephone: +354-866-3131.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: valur.steinarsson[hjá]gmail.com