Greinar merkar Hlaðvarp

miðvikudagur, 3. mar 2010

Hlaðvarp: Gamall eða nýr tími á 18. öld?

Í gær flutti Hrefna Róbertsdóttir fyrirlestur sinn "Gamall eða nýr tími á 18. öld?" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er dómur sögunnar? Þeir sem ekki komust í Þjóðminjasafnið til að hlusta á fróðlegt erindið geta hlustað á upptöku þess hér.

Lesa áfram »

mánudagur, 1. mar 2010

Gamall eða nýr tími á 18. öld?

Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur flytur erindi Gamall eða nýr tími á 18. öld? þriðjudaginn 2. mars kl. 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Í erindinu fjallar Hrefna um hugmyndir um hvernig líta megi á landshagi og samfélagsmál á átjándu öld með hliðsjón af öldunum sem umlykja hana, þá sautjándu og þá nítjándu. Öldin átjánda hefur fengið margar umsagnir og [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 16. feb 2010

Hlaðvarp: „Ég var ekki falur neinu valdi“

Fyrr í dag flutti Jón Yngvi Jóhannsson erindi um Gunnar Gunnarsson og dóm sögunnar. Fyrirlesturinn var hluti af röðinni  Hvað er dómur sögunnar? Nú er hægt að hlusta á herlegheitin en vert er að geta þess að upptakan er óvenju lágvær að þessu sinni. Hljóðskráin er hér.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 11. feb 2010

„Ég var ekki falur neinu valdi.“ Um Gunnar Gunnarsson og dóm sögunnar

Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur flytur erindið „Ég var ekki falur neinu valdi.“ Um Gunnar Gunnarsson og dóm sögunnar þriðjudaginn 16. febrúar kl. 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Í erindinu fjallar Jón Yngvi meðal annars um samskipti Gunnars við Þriðja ríkið og afstöðu Gunnars sjálfs á efri árum til hlutverks síns í sögunni. Erindið er hluti [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 3. feb 2010

Hvað er kreppa? Málþing á Akureyri

AkureyrarAkademían og Sagnfræðingafélag Íslands standa að málþinginu Hvað er kreppa? mánudaginn 8. febrúar kl. 15 í gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri. Á málþinginu endurflytja Viðar Hreinsson, Sigrún Davíðsdóttir og Guðmundur Hálfdanarson fyrirlestrana sem þau héldu í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins haustið 2009 undir yfirskriftinni Hvað er kreppa?

Lesa áfram »

Hlaðvarp: „Útlent vald oss yfir dynur – Ísland hefur jarl!“

Í gær hélt Úlfur Bragason erindi um Gissur Þorvaldsson og mat á bæði honum og samtímamönnum hans. Fyrirlesturinn var afar vel sóttur og vel talað um hann. Þetta var annar hádegisfyrirlesturinn í röðinni Hvað er dómur sögunnar? og er nú hægt að hlusta á erindið í heild sinni hér.

Lesa áfram »

föstudagur, 29. jan 2010

„Útlent vald oss yfir dynur – Ísland hefur jarl!“

Úlfar Bragason prófessor flytur erindið „Útlent vald oss yfir dynur – Ísland hefur jarl!“ Eftirmæli Gissurar Þorvaldssonarþriðjudaginn 2. febrúar kl. 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins sem ber yfirskriftina Hvað er dómur sögunnar? Í lýsingu á erindinu segir: Í bók sinni um Gissur jarl (1966) sagði Ólafur Hansson: „Það mun hafa verið hin almenna skoðun [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 26. jan 2010

Kallað eftir erindum á Landsbyggðaráðstefnu

Sagnfræðingafélag Íslands og Félag þjóðfræðinga á Íslandi áætla að halda næstu landsbyggðaráðstefnu sína á Suðausturlandi; í Suðursveit og á Höfn Hornafirði. Ráðstefnan verður haldin í samvinnu við Fræðasetur Háskóla Íslands á Höfn og ReykjavíkurAkademíuna, helgina 21.-23. maí. Fyrirsögn ráðstefnunnar er að þessu sinni UNDIR HORNAFJARÐARMÁNA og áhersla verður lögð á samspil mannlífs, menningar og náttúru á Suðausturlandi. Óskað er eftir erindum [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 19. jan 2010

Hlaðvarp: Dómur sögunnar er ævinlega rangur!

Sigurður Gylfi Magnússon hélt í dag opnunarerindi hádegisfyrirlestraraðarinnar Hvað er dómur sögunnar? Vel var mætt í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins en nú geta þeir sem ekki komust fyrir eða vilja hlusta aftur gert það. Erindi Sigurðar, Dómur sögunnar er ævinlega rangur!, er aðgengilegt hér.

Lesa áfram »

föstudagur, 15. jan 2010

Dómur sögunnar er ævinlega rangur!

Sigurður Gylfi Magnússon, doktor í sagnfræði og háskólakennari, flytur erindið Dómur sögunnar er ævinlega rangur! þriðjudaginn 19. janúar kl. 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Með erindinu opnar Sigurður Gylfi vormisseri hádegisfyrirlestraraðarinnar Hvað er dómur sögunnar? Í þessum fyrirlestri mun Sigurður Gylfi sýna fram á með dæmum að sagnfræðingar verði að ganga út frá því í sinni [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 12. jan 2010

Bókafundur

Hinn árlegi bókafundur Sögufélags og Sagnfræðingafélagsins verður haldinn fimmtudaginn 14. janúar kl. 20 í húsnæði Sögufélags, Fischersundi 3. Ævisagnaþema verður á fundinum og er dagskráin eftirfarandi: 20.00 Vigdís. Kona verður forseti eftir Pál Valsson. Erla Hulda Halldórsdóttir gagnrýnir. 20:30 Mynd af Ragnari í Smára eftir Jón Karl Helgason. Sigrún Sigurðardóttir gagnrýnir. 21: 00 Hlé 21:15  [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 20. des 2009

Gleðileg jól!

Stjórn Sagnfræðingafélags Íslands óskar félagsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með kærum þökkum fyrir viðburðarríkt ár. Dómur sögunnar verður vonandi umræðuefni hjá öllu áhugafólki um sögu á næstunni því hádegisfyrirlestrar vorsins 2010 munu taka á þessu spennandi efni.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 3. des 2009

Hlaðvarp: Er íslenskt fullveldi í kreppu?

Guðmundur Hálfdanarson prófessor hélt áhugaverðan fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands síðastliðinn þriðjudag, Er íslenskt fullveldi í kreppu? Erindið hlaut verðskuldaða athygli, fjöldi gesta mætti og fjölmiðlar gerðu fundinum skil. Lauk þarna hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kreppa? en eftir áramót tekur við röðin Hver erdómur sögunnar? Fyrir þá sem ekki gátu mætt eða vilja hlusta aftur á erindi Guðmundar [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 26. nóv 2009

Er íslenskt fullveldi í kreppu?

Guðmundur Hálfdánarson  prófessor flytur erindið Er íslenskt fullveldi í kreppu? þriðjudaginn 1. desember kl. 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins sem ber yfirskriftina Hvað er kreppa? Í lýsingu á erindinu segir: Allt frá því að fullveldi íslensku þjóðarinnar var formlega viðurkennt með gildistöku sambandslaga Íslands og Danmerkur hinn 1. desember 1918 hefur [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 17. nóv 2009

Hlaðvarp: Velferðarríkið og efnahagskreppur á Íslandi

Fyrr í dag flutti Guðmundur Jónsson prófessor erindi sitt Velferðarríkið og efnahagskreppur á Íslandi í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er kreppa? Líkt og venja er var viðburðurinn tekinn upp og er nú gerður aðgengilegur þeim sem misstu af eða vilja hlýða aftur á þetta áhugaverða erindi. Þó skal vekja athygli á því að á upptökuna vantar [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 14. nóv 2009

Velferðarríkið og efnahagskreppur á Íslandi

Næstkomandi þriðjudag heldur Guðmundur Jónsson prófessor erindi í hádegisfyrirlestrarröð Sagnfræðingafélags Íslands, Hvað er kreppa? en erindi hans nefnist Velferðarríkið og efnahgaskreppur á Íslandi. Ísland er hvikult land ekki aðeins í jarðfræðilegum skilningi heldur einnig efnahagslegum. Hér hafa hagsveiflur verið tíðari og öfgafyllri  en í flestum ríkjum Evrópu amk. síðan á 19. öld og hafa þær oft [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 6. nóv 2009

Kjarakönnun

Í kjölfar umræðu í röðum sagnfræðinga um hvað geti talist eðlilegt í launamálum hefur stjórn Sagnfræðingafélags Íslands ákveðið að hrinda af stað könnun meðal sagnfræðinga í því skyni að komast að raun um hvernig kjaramálum félagsmanna sé háttað. Felast spurningarnar aðallega í því hvað fólki finnst eðlilegt að greitt sé fyrir tiltekna vinnu og hvernig [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 3. nóv 2009

Hlaðvarp: Kreppan og kunningjaþjóðfélagið

Fyrr í dag flutti Sigrún Davíðsdóttir erindi sitt "Kreppan og kunningjaþjóðfélagið" í hádegisfyrirlestrarröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er kreppa? Óhætt er að fullyrða að erindið hafi hlotið verðskuldaða athygli því um 170 manns hlýddu á Sigrúnu en það er met á þessum fundarstað. En þó margir hafi mætt á staðinn eru fjölmargir áhugasamir sem ekki komust [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 30. okt 2009

Kreppan og kunningjaþjóðfélagið

Sigrún Davíðsdóttir, blaðamaður og rithöfundur, flytur erindið Kreppan og kunningjaþjóðfélagið þriðjudaginn 3. nóvember kl. 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins sem ber yfirskriftina Hvað er kreppa?

Lesa áfram »

miðvikudagur, 21. okt 2009

Tæknilegir örðugleikar

Í gær, þriðjudaginn 20. október, flutti Skúli Sæland fyrirlestur sinn um ímyndarkreppu Skálholts á 20. öld og viðreisn staðarins í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kreppa? Að öllu jöfnu væri nú boðið upp á upptöku af fundinum en því miður heppnaðist upptakan ekki og verðum við því að taka viðstadda trúanlega í því að erindið og umræðurnar [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 18. okt 2009

Ímyndarkreppa Skálholts og viðreisn þess um miðja síðustu öld

Skúli Sæland sagnfræðingur mun fjalla um viðreisn Skálholts á 20. öld í fyrirlestri í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands, nk. þriðjudag þann 20. október.

Lesa áfram »

mánudagur, 12. okt 2009

Hlaðvarp: Íslenskur kreppukostur

Í síðustu viku, þann 6. október, flutti Sólveig Ólafsdóttir erindið "Íslenskur kreppukostur: matur í fánalitunum" í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands, Hvað er kreppa?

Fyrirlesturinn er nú aðgengilegur sem hljóðskrá hér.

Lesa áfram »

mánudagur, 5. okt 2009

Íslenskur kreppukostur - matur í fánalitunum

Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur og verkefnastjóri mun fjalla um íslenskan kreppukost í fyrirlestri í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands, nk. þriðjudag þann 6. október. Matur er nátengdur tilfinningum okkar og sjálfsmynd. Hvað er það sem fær almenning til að breyta um matarvenjur á krepputímum og af hverju voru í það minnsta fimm verksmiðjur sem framleiddu og seldu matarliti í Reykjavík á fjórða áratug síðustu aldar?

Lesa áfram »

þriðjudagur, 29. sep 2009

Hugh Reid: Áskriftarlistar við bókaútgáfu á átjándu öld

Fyrsti kvöldfundur vetrarins verður haldin miðvikudaginn 30. september kl. 20:00 í húsi Sögufélags við Fischersund. Þar mun Dr. Hugh Reid halda fyrirlestur um áskriftalista við bókaútgáfu á átjándu öld. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 22. sep 2009

Hlaðvarp: Hugvísindi á krepputímum

Fyrr í dag fluttu Katrín Jakobsdóttir, Viðar Hreinsson og Íris Ellenberger stutt erindi og sátu fyrir svörum á málfundi undir yfirskriftinni "Hugvísindi á krepputímum. Staða, hlutverk og sóknarfæri". Málfundurinn var fyrsti liður í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Ísland Hvað er kreppa? Erindin eru nú aðgengileg hér í hljóðupptöku.

Lesa áfram »

miðvikudagur, 16. sep 2009

Hugvísindi á krepputímum. Staða, hlutverk og sóknarfæri

Þann 22. september nk. heldur Sagnfræðingafélag Íslands málfundinn Hugvísindi á krepputímum. Staða, hlutverk og sóknarfæri með þátttöku menntamálaráðherra, Viðars Hreinssonar framkvæmdastjóra ReykjavíkurAkademíunnar og Írisar Ellenberger formanns Sagnfræðingafélagsins. Stefán Pálsson verður fundarstjóri. Ráðstefnan mun opna hina árlegu hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins. Yfirskrift haustmisseris er Hvað er kreppa?

Lesa áfram »

þriðjudagur, 1. sep 2009

Breyting á haustgöngu

Nú á laugardag verður haustganga Sagnfræðingafélagsins, undir leiðsögn Sólveigar Ólafsdóttur sagnfræðings og Heimis Björns Janusarsonar. Vakin er sérstök athygli á að lagt verður af stað frá þjónustuhúsi garðsins, Ljósvallagötumegin kl. 14.00. Sjáumst þar!

Lesa áfram »

föstudagur, 7. ágú 2009

Haustganga

Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur og Heimir B. Janusarson garðyrkjustjóri munu leiða félagsmenn um Suðurgötukirkjugarðinn þann 5. september næstkomandi. Sagt verður frá fólkinu sem þar hvílir, flóru garðarins og öðru forvitnilegu sem snertir sögu garðsins. Síðasta haustganga félagsins tókst vel og er stefnan að hefja haustið framvegis á slíkum göngum. Gerum okkur góðan dag í hópi skemmtilegra félaga [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 5. jún 2009

Strandhögg

Vegna forfalla eru örfá sæti laus á Strandhögg, landsbyggðarráðstefnu Sagnfræðingafélagsins og Félags Þjóðfræðinga í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og Þjóðfræðistofu. Ráðstefnan fer fram á ferðinni milli Hólmavíkur og Krossneslaugar. Á völdum stöðum munu fyrirlesarar halda erindi sem tengjast þema ráðstefnunnar, sambandi jaðars og miðju. Dagskrárrit með útdráttum má nálgast hér. Ráðstefnugjald er 4500 kr. og í því felast allar rútuferðir, hádegisverður laugardag og [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 28. maí 2009

Hvað er kreppa? Hvað er dómur sögunnar?

Stjórn Sagnfræðingafélagsins ákvað á fundi í vikunni hver yfirskrift næstu hádegisfundaraðar verður. Hin óformlega könnun hér á síðunni var stjórninni til aðstoðar við ákvörðunina en þar urðu þrjú efni hlutskörpust, kreppa, endurreisn og dómur sögunnar. Því var ákveðið að hafa veturinn tvískiptan sem fyrr, haustmisseri helgað kreppunni (og þá endurreisninni um leið, enda tvær hliðar á sama teningi), en á vormisseri verður fjallað um dóm sögunnar.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 12. maí 2009

Könnun vegna hádegisfyrirlestra 2009-2010

Í kjölfar líflegra umræðna á Gammabrekku um yfirskrift(ir) hádegisfyrirlestra næsta vetrar hefur stjórn Sagnfræðingafélags Íslands ákveðið að bjóða áhugasömum að kjósa um tillögurnar. Kosningin fer fram á hér að neðan og er hægt að velja á milli nokkurra efna sem nefnd voru á Gammabrekku auk þess sem hægt er að bæta við tillögum. Þar sem [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 28. apr 2009

Hlaðvarp: Stjórnarbylting á Íslandi 1809

Fyrr í dag flutti Anna Agnarsdóttir hádegisfyrirlesturinn „Stjórnarbylting á Íslandi 1809: Stóð Íslendingum á sama?“ Fyrirlesturinn er hluti hádegisfyrirlestrarraðar Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt, smellið hér til að hlusta.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 23. apr 2009

Anna Agnarsdóttr: Stjórnarbylting á Íslandi 1809: Stóð Íslendingum á sama?

Anna Agnarsdóttir prófessor flytur erindið „Stjórnarbylting á Íslandi 1809: Stóð Íslendingum á sama?“ þriðjudaginn 28. apríl kl. 12:05 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands sem ber yfirskriftina Hvað er andóf?

Lesa áfram »

fimmtudagur, 16. apr 2009

Skemmtiferð sagnfræðinga í Borgarnes

Sagnfræðingafélag Íslands hyggst standa fyrir sameiginlegri ferð félagsmanna (með mökum eða vinum) vestur í Borgarnes, hvar ferðalangar munu snæða saman ljúffenga máltíð á Landnámssetrinu og fara að því loknu á sýningu, eða sagnaþátt Einars Kárasonar, er nefnist Stormar og styrjaldir og fjallar um atburði Sturlungaaldar á sinn einstaka hátt.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 14. apr 2009

Hlaðvarp: Loksins ertu sexí!

Fyrr í dag flutti Brynhildur Sveinsdóttir fyrirlestur Unnar Maríu Bergsveinsdóttur Loksins ertu sexí! Íslenskur menningararfur í meðförum pönkara. Fyrirlesturinn er hluti hádegisfyrirlestrarraðar Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt, smellið hér til að hlusta.

Lesa áfram »

laugardagur, 11. apr 2009

Loksins ertu sexí!

Erindi Unnar Maríu Bergsveinsdóttur „Loksins ertu sexí! Íslenskur menningararfur í meðförum pönkara“ verður flutt þriðjudaginn 14. apríl kl. 12:05 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands sem ber yfirskriftina Hvað er andóf?

Lesa áfram »

þriðjudagur, 31. mar 2009

Hlaðvarp: Andófið gegn Atlantshafsbandalaginu 30. marz

Fyrr í dag flutti Sigurður Líndal hádegisfyrirlesturinn Andófið gegn Atlantshafsbandalaginu 30. marz. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta. Vegna tækniörðugleika er hljóðið á upptökunni frekar lágt og er mælt með því að heyrartól séu notuð við hlustun.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 26. mar 2009

Sigurður Líndal: Andófið gegn Atlantshafsbandalaginu 30. marz

Sigurður Líndal prófessor flytur erindið „Andófið gegn Atlantshafsbandalaginu 30. marz“ þriðjudaginn 31. mars kl. 12:05 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands sem ber yfirskriftina Hvað er andóf?

Lesa áfram »

miðvikudagur, 25. mar 2009

Ársreikningur

Á aðalfundi félagsins, þann 21. mars síðastliðinn, lagði gjaldkeri fram ársreikninga. Vakti frágangur, framsetning og vinna við reikningana sérstaka lukku fundargesta. Geta nú allir skoðað umtalaða reikninga hér.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 24. mar 2009

Ársskýrsla formanns fyrir starfsárið 2008-2009

Á nýliðnum aðalfundi félagsins fór formaður þess yfir starfsemina á liðnu ári. Af mörgu var að taka eins og sjá má í ársskýrlsunni hér að neðan.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 17. mar 2009

Aðalfundur Sagnfræðingafélagsins 21. mars

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands fer fram laugardaginn 21. mars n.k. í húsi Sögufélags við Fischersund. Fundurinn hefst kl. 16. Dagskrá 1) Ársskýrsla kynnt og lögð fram til samþykktar. 2) Endurskoðaðir reikningar kynntir og lagðir fram til samþykktar. 3) Lagabreytingar (engar tillögur að lagabreytingum hafa borist stjórn félagsins). 4) Kjör stjórnar. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja fulltrúa í Landsnefnd íslenskra sagnfræðinga [...]

Lesa áfram »

Hlaðvarp: Þýðing andófs fyrir þróun réttarins

Fyrr í dag flutti Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður hádegisfyrirlesturinn Þýðing andófs fyrir þróun réttarins. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.

Lesa áfram »

föstudagur, 13. mar 2009

Ragnar Aðalsteinsson: Þýðing andófs fyrir þróun réttarins

Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður flytur erindið „Þýðing andófs fyrir þróun réttarins“ þriðjudaginn 17. mars kl. 12:05 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands sem ber yfirskriftina Hvað er andóf? Í lýsingu á erindinu segir: Í fyrirlestrinum verður einkum fjallað um borgarlega óhlýðni. Hugtakið verður skilgreint og afmarkað frá aðgerðum eins og löglegum mótmælafundum [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 3. mar 2009

Hlaðvarp: Þversögn andófsins

Fyrr í dag flutti Jón Ólafsson heimspekingur hádegisfyrirlesturinn Þversögn andófsins. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.

Lesa áfram »

laugardagur, 28. feb 2009

Jón Ólafsson: Þversögn andófsins 3. mars kl. 12.05

Jón Ólafsson heimspekingur flytur erindið „Þversögn andófsins“ þriðjudaginn 3. mars kl. 12:05 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands sem ber yfirskriftina Hvað er andóf? Í lýsingu á erindinu segir: Frjálslynd lýðræðishyggja samtímans gerir ráð fyrir að tjáningarfrelsi séu grundvallarréttindi. Það þýðir að rétturinn til að tjá hverskyns óánægju, andúð eða andstöðu er [...]

Lesa áfram »

Aðalfundur Sagnfræðingafélagsins 21. mars

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands fer fram laugardaginn 21. mars n.k. í húsi Sögufélags við Fischersund. Fundurinn hefst kl. 16. Dagskrá 1) Ársskýrsla kynnt og lögð fram til samþykktar. 2) Endurskoðaðir reikningar kynntir og lagðir fram til samþykktar. 3) Lagabreytingar (engar tillögur að lagabreytingum hafa borist stjórn félagsins). 4) Kjör stjórnar. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja fulltrúa í Landsnefnd íslenskra sagnfræðinga [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 13. feb 2009

Lára Magnúsardóttir: Ótti við andóf veldur andófi og ótta, 17. febrúar kl. 12.05

Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur flytur erindið „Ótti við andóf veldur andófi og ótta“ þriðjudaginn 17. febrúar kl. 12:05 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands sem ber yfirskriftina Hvað er andóf?

Í lýsingu á erindinu segir:
Í sögu Vesturlanda var ótti við reiði Guðs lengst af sterkt afl sem hefur ekki aðeins sett svip sinn á líf almennings heldur einnig stjórnmálaþróun og réttarkerfi. Yfirvofandi dómur Guðs á hinsta degi átti þátt í því að veraldarhöfðingjar sættu sig við að deila valdi með kirkjunni, því af honum réðst hverjum yrði úthlutað eilífu lífi. Ekki var hægt að horfa framhjá jafnmikilvægum þætti í lífi hvers manns.

Lesa áfram »

laugardagur, 7. feb 2009

Hlaðvarp: Andóf í akademíunni

Síðastliðinn þriðjudag flutti Árni Daníel Júlíusson hádegisfyrirlesturinn Andóf í akademíunni. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 3. feb 2009

Árni Daníel Júlíusson: Andóf í akademíunni

Þriðjudaginn 3. febrúar flytur Árni Daníel Júlíusson hádegisfyrirlesturinn Andóf í akademíunni. Athugið að dagskrá vormisseris hefur verið breytt. Lára Magnúsardóttir sem átti að flytja fyrirlestur 3. febrúar flytur erindi sitt 17. febrúar.

Í lýsingu Árna á erindinu segir:
Meðal þess sem rætt hefur verið eftir hrun efnahagslífsins er ábyrgð akademíunnar. Spurt er af hverju menntamenn hafi ekki séð fyrir hvað væri að gerast og varað við því, þannig að tekið væri eftir. Í erindinu verða nokkrar mögulegar ástæður þess ræddar. Í fyrsta lagi var hugmyndafræði frjálshyggjunnar andsnúin því að rætt væri um samfélag og stórar heildir. Öll áhersla var á einstaklinginn og frelsi hans. Þetta hafði veruleg áhrif í akademíunni, því þrengt var að hug- og félagsvísindum og lítill áhugi af hálfu stjórnvalda á því að afla upplýsinga til að fá yfirsýn. Þetta sést best á því að Þjóðhagsstofnun var beinlínis lögð niður.

Lesa áfram »

Hlaðvarp: Hetjudáð eða hermdarverk?

Fyrirlestur Kjartans Ólafssonar Hetjudáð eða hermdarverk? er nú aðgengilegur hér á vef Sagnfræðingafélagsins. Smellið hér til að hlusta á erindið í heild sinni. Kjartan hélt erindið aðeins einni klukkustund fyrir búsáhaldabyltingu þann örlagaríka dag 20. janúar 2009. Að erindinu loknu spurði Óttar M. Norðfjörð hvað Kjartan teldi að þyrfti að gerast til að mótmæli hlytu meiri [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 16. jan 2009

Árni Daníel Júlíusson: Andóf í akademíunni

Þriðjudaginn 3. febrúar flytur Árni Daníel Júlíusson hádegisfyrirlesturinn Andóf í akademíunni. Þar mun Árni leitast við að svara áleitnum spurningum um akademíuna og efnahagshrunið. Hver er ábyrgð menntamanna á hruni efnahagskerfisins? Af hverju sáu þeir það ekki fyrir, hvað dugar að halda uppi fræðasamfélagi ef það áttar sig ekki á efnahagshruni í uppsiglingu? Er ekki [...]

Lesa áfram »

Hetjudáð eða hermdarverk? Kjartan Ólafsson opnar vormisseri hádegisfyrirlestrarraðar Sagnfræðingafélagsins undir yfirrskriftinni "Hvað er andóf?"

Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans, opnar fyrirlestraröðina með erindi sínu Hetjudáð eða hermdarverk? þriðjudaginn 20. janúar kl. 12:05 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.

Í fyrri hluta erindisins verður fjallað um vissa atburði úr 20. aldar sögu nálægra Evrópuríkja og rætt þá meðal um annars hversu mjótt getur verið á munum þegar reynt er að flokka gerðir manna ýmist í hetjudáðir eða hermdarverk. Vakin verður athygli á með hvaða hætti framvinda sögunnar breytir stundum slíku mati og feykir til viðhorfum innan eins og sama hópsins.

Í síðari hluta fyrirlestursins verður fjallað um símahleranir íslenskra stjórnvalda hjá pólitískum andstæðingum þeirra á árunum 1949 – 1968. Þá lítur Kjartan meðal annars á rökin sem viðkomandi ráðherra beitti er hann bað um nefndar hleranir, rætt nokkuð hverjir það voru sem fyrir hlerunum urðu og um störf sín við að upplýsa málið.

Lesa áfram »

mánudagur, 10. nóv 2008

Júðar, negrar og tataralýður? Ótti, ógn og meintir útlenskir óvinir Íslands

Þriðjudaginn 11. nóvember flytur Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur hádegisfyrirlesturinn Júðar, negrar og tataralýður? Ótti, ógn og meintir útlenskir óvinir Íslands. Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 28. okt 2008

Hlaðvarp - Óttinn við sjúkdóma: Spænska veikin og fuglaflensan

Fyrr í dag flutti Viggó Ásgeirsson hádegisfyrirlesturinn Óttinn við sjúkdóma: Spænska veikin og fuglaflensan. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.

Lesa áfram »

mánudagur, 27. okt 2008

Viggó Ásgeirsson - "Óttinn við sjúkdóma: Spænska veikin og fuglaflensan

Þriðjudaginn 28. október flytur Viggó Ásgeirsson sagnfræðingur hádegisfyrirlesturinn Óttinn við sjúkdóma: Spænska veikin og fuglaflensan. Í lýsingu á efni erindisins segir: Í erindinu verður fjallað um spænsku veikina á árunum 1918-1919 en hún er skæðasti inflúensufaraldur sem gengið hefur yfir heiminn. Farið verður yfir það hvernig veikin barst til Íslands og til hvaða ráðstafana var gripið. [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 13. okt 2008

Guðmundur Jónsson: Hallærasamt land en þó ekki óbyggjandi. Um efnahagskreppur og óttann við þær

Þriðjudaginn 14 október flytur Guðmundur Jónsson prófessor hádegisfyrirlesturinn: Hallærasamt land en þó ekki óbyggjandi. Um efnahagskreppur og óttann við þær. Í lýsingu á efni fyrirlestrarins segir: Á fjármálakreppan sem nú stendur yfir sér hliðstæður í hagsögu 20. aldarinnar eða er hún einstæður atburður? Í erindinu er leitast við að setja hrun fjármálakerfisins í sögulegt [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 29. sep 2008

Guðni Th. Jóhannesson: „Með því að óttast má ...“ Ástæður símhlerana í kalda stríðinu

Þriðjudaginn 30 september flytur Guðni Th. Jóhannesson hádegisfyrirlesturinn „Með því að óttast má ...“ Ástæður símhlerana í kalda stríðinu. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast? Í erindinu verða rök yfirvalda fyrir hlerunum hverju sinni vegin og metin. Rakið verður hvað réð því að ákveðið var að hlera hjá sumum sósíalistum og/eða [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 16. sep 2008

Af hlaðborði aldarinnar. Áfangar og áræðni í íslenskri matarmenningu

Sagnfræðingafélag Íslands er ásamt félaginu Matur -saga - menning og Reykjavíkur Akademíunni einn aðstandenda ráðstefnu sem verður haldin 27. september næstkomandi í Iðnó klukkan 14-17. Ber hún heitið Af hlaðborði aldarinnar. Áfangar og áræðni í íslenskri matarmenningu. Fjallað verður um upphaf veitingasölu, matarmenningu á tímum hafta og skömmtunar, ímynd íslenska eldhússins, tilraunir íslenskra stjórnvalda [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 9. sep 2008

Hádegisfundir veturinn 2008-9

Nú haustar og því hefjast hádegisfyrirlestrar Sagnfræðinga félagsins á ný. Í þetta sinn munu fyrirlesarar reyna að svara spurningunum "Hvað er að óttast?" og "Hvað er andóf?". Dagskrá vetrarins er á þessa leið: 2008 - Hvað er að óttast? 16. september Björn Bjarnason: Kalda stríðið - dómur sögunnar. 30. september Guðni Th. Jóhannesson: „Með því að óttast má ...“ [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 2. sep 2008

Stjórn Sagnfræðingafélagsins skrifar forseta Alþingis

Nýverið vöktu fjölmiðlar athygli á því að við yfirlestur á þingræðu til birtingar í Alþingstíðindum á netinu hafi þingmaður breytt merkingu ummæla sem hann lét falla í ræðustól á Alþingi. Af því tilefni sendi stjórn Sagnfræðingafélags forseta Alþingis bréf og minnti á þá staðreynd að sagnfræðingar jafnt sem annað fræðafólk notar þingtíðindi sem heimildir og [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 12. jún 2008

Ímynd Íslands - bréf til forsætisráðherra

Stjórn Sagnfræðingafélag Íslands hefur sent forsætisráðherra bréf. Tilefnið er nýútgefin skýrsla um ímynd Íslands. Skýrslan er afrakstur af starfi nefndar forsætisráðherra en nefndarformaður var Svava Grönfeldt, rektor við Háskólann í Reykjavík. Í skýrslunni kemur fram að ein af undirstöðum ímyndar Íslands eigi að vera uppruni þjóðarinnar og þá m.a. eftirfarandi þættir í sögu hennar: [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 29. maí 2008

Kvöldfundur um hádegisfundi

Fyrir skemmstu náði hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands þeim merka áfanga að fagna 10 ára afmæli. Eins og komið hefur fram í Fréttabréfi og einnig í sögu félagsins, þá hafa fyrirletrarnir verið fjölmargir og fjölbreyttir. Eitthvað af þeim fyrirlestrum sem hafa verið fluttir, hafa jafnframt verið gefnir út á prenti. Þar má nefna fyrirlestraröðin Hvað er borg? [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 5. maí 2008

Að endurheimta augnablikið: Þjóðfræði, kvikmyndatækni og írónía

Þriðjudaginn 6. maí flytur Kristinn Schram hádegisfyrirlesturinn Að endurheimta augnablikið: Þjóðfræði, kvikmyndatækni og írónía. Kristinn er forstöðumaður Þjóðfræðistofu, stundakennari við H.Í og doktorsnemi við Edinborgarháskóla. Er kvikmyndun sjálfsagt tæki í vettvangsrannsóknum? Verður menning varðveitt í hreyfimynd og hljóði og síðan endurupplifuð? Hvers eðlis eru þjóðfræðilegar kvikmyndir? Hafa kvikmyndir eðli? Í fyrirlestrinum verður fjallað [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 20. apr 2008

Er réttlætanlegt að henda ljósmynd?

Þriðjudaginn 22. apríl flytur María Karen Sigurðardóttir, forvörður og safnstjóri Ljósmyndasafns Reykjavíkur, hádegisfyrirlesturinn Er réttlætanlegt að henda ljósmynd? Af hverju varðveitum við gamlar ljósmyndir af fólki, jafnvel þótt enginn viti hvaða fólk er á myndunum? Getur verið að eftir því sem ljósmynd eldist, aukist menningarleg verðmæti hennar þar sem hún varðveitir brot af andrúmi sem er [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 8. apr 2008

Minjar í torfi: hugmyndafræði varðveislu Núpsstaðar

Fyrr í dag flutti Anna Lísa Rúnarsdóttir hádegisfyrirlesturinn Minjar í torfi: hugmyndafræði varðveislu Núpsstaðar. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla? Smellið hér til að hlýða á fyrirlestur Önnu.

Lesa áfram »

sunnudagur, 6. apr 2008

Minjar í torfi: hugmyndafræði varðveislu Núpsstaðar

Þriðjudaginn 8. apríl flytur Anna Lísa Rúnarsdóttir hádegisfyrirlesturinn Minjar í torfi: hugmyndafræði varðveislu Núpsstaðar. Þjóðminjasafni Íslands hefur verið falið að tryggja varðveislu torfhúsanna á Núpsstað í Fljótshverfi. Í þessu erindi verður kynnt nálgun og hugmyndafræði þessa verkefnis. Fjallað verður um þá alþjóðlegu sáttmála og kröfur heimsminjaskrár sem hafa haft áhrif á verkefnið, en einnig um [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 20. mar 2008

Ólíkar hugmyndir um varðveislu fornminja á fyrri hluta nítjándu aldar

Þriðjudaginn 25. mars flytur Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir,doktorsnemi í sagnfræði við háskólann í Gautaborg og gestafræðimaður á Þjóðminjasafni Íslands, hádegisfyrirlesturinn Ólíkar hugmyndir um varðveislu fornminja á fyrri hluta nítjándu aldar. Árið 1807 var Hinni konunglegu fornleifanefnd komið á fót í Kaupmannahöfn. Nefndinni var ætlað að friða fornleifar í ríkjum Danakonungs og safna forngripum til Fornnorræns safns sem [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 18. mar 2008

Ársskýrsla formanns

Hér á eftir fer árskýrsla Hrefnu Karlsdóttur, fráfarandi formanns Sagnfræðingafélags Íslands fyrir formannsárið 2007/2008. Var hún lögð fyrir aðalfund 8. mars 2008 1. Formannsskipti urðu á árinu 2007. Guðni Th. Jóhannesson hætti formennsku og við tók Hrefna Karlsdóttir. Að auki gengju úr stjórn Hilma Gunnarsdóttir gjaldkeri en í hennar stað kom Magnús Lyngdal Magnússon og Margrét Gestsdóttir [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 11. mar 2008

Af aðalfundi Sagnfræðingafélags Íslands

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands var haldinn í húsi Sögufélagsins laugardaginn 8. mars 2008 kl. 16. Fráfarandi formaður félagsins Hrefna Karlsdóttir bauð fundargesti velkomna og gerði það að tillögu sinnu að Guðmundur Jónsson yrði skipaður fundarstjóri. Aðrar tillögur um fundarstjóra komu ekki fram og tók Guðmundur við fundarstjórn. Hann sagði nokkur orð og minnti fundarmenn á formlegar [...]

Lesa áfram »

Hlaðvarp: Hver gætir hagsmuna minna?

Fyrr í dag flutti Örn Hrafnkelsson, sagnfræðingur og forstöðumaður Handritadeildar Landsbókasafns Íslands, hádegisfyrirlesturinn Hver gætir hagsmuna minna? Um notkun og aðgengi að einkaskjölum í Landsbókasafni. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla? Smellið hér til að hlýða á fyrirlestur Arnar.

Lesa áfram »

sunnudagur, 9. mar 2008

Hver gætir hagsmuna minna? Um notkun og aðgengi að einkaskjölum í Landsbókasafni

Þriðjudaginn 11. mars flytur Örn Hrafnkelsson, sagnfræðingur og forstöðumaður Handritadeildar Landsbókasafns Íslands, hádegisfyrirlesturinn Hver gætir hagsmuna minna? Um notkun og aðgengi að einkaskjölum í Landsbókasafni. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla? Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Lesa áfram »

miðvikudagur, 5. mar 2008

Hádegisfyrirlestur Más Jónssonar aðgengilegur á vef Sagnfræðingafélagsins

Vegna tæknilegra mistaka verður fyrirlestur Más Jónssonar Varðveisla texta: hvað er það? því miður ekki aðgengilegur sem hljóðskrá. Texta fyrirlestursins má hinsvegar lesa hér á vef Sagnfræðingafélagsins sem .pdf skjal ásamt meðfylgjandi glærum. Smellið hér til að lesa textann og hér til að nálgast glærurnar.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 28. feb 2008

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands fer fram laugardaginn 8. mars í húsi Sögufélags við Fischersund. Fundurinn hefst kl. 16. Dagskrá: Ársskýrsla kynnt og lögð fram til samþykktar. Endurskoðaðir reikningar kynntir og lagðir fram til samþykktar. Lagabreytingar (engar tillögur að lagabreytingum hafa borist stjórn félagsins). Kjör stjórnar. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja fulltrúa í Landsnefnd íslenskra sagnfræðinga til [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 21. feb 2008

Varðveisla texta: hvað er það?

23. febrúar klukkan 12:05 flytur Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, fyrirlesturinn Varðveisla texta: hvað er það? í Þjóðminjasafni Íslands. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands. Varðveisluhugtakið verður tekið til umræðu og er fullyrt að það feli ekki eingöngu í sér vörslu eða gæslu á menningarlegum og sögulegum verðmætum, svo sem til [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 12. feb 2008

Hlaðvarp: Hvað er að heyra?

Fyrr í dag flutti Unnur María Bergsveinsdóttir, sagnfræðingur og verkefnastjóri Miðstöðvar munnlegrar sögu, erindið Hvað er að heyra? Varðveisla munnlegra heimilda á hádegisfundi Sagnfræðingafélags Íslands. Þeir sem misstu af þessum skemmtilega fundi geta smellt hér til að hlýða á erindi Unnar á .mp3 formi. Einnig er hægt að nálgast texta fyrirlestursins sem .pdf skjal á [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 10. feb 2008

Bókafundur Sögufélags og Sagnfræðingafélags Íslands

Hinn árlegi bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags verður haldinn miðvikudaginn 13. febrúar kl. 20:00 í húsakynnum Sögufélags í Fischersundi. Eftirfarandi bækur, sem komu út árið 2007, verða teknar til umfjöllunar: Silfur hafsins - gull Íslands: síldarsaga Íslendinga: margir höfundar. Framsögumaður: Guðmundur Jónsson sagnfræðingur Kristín Jónsdóttir, "Hlustaðu á þína innri rödd". Kvennaframboð í Reykjavík og Kvennalisti 1982-1987 Framsögumaður: Helgi [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 9. feb 2008

Hvað er að heyra? Varðveisla munnlegra heimilda.

Þriðjudaginn 12. febrúar flytur Unnur María Bergsveinsdóttir sagnfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands. Unnur María ræðir um varðveislu munnlegra heimilda og ber fyrirlesturinn heitið Hvað er að heyra?. Unnur María er verkefnastjóri hjá Miðstöð munnlegrar sögu. Munnleg saga hefur í seinni tíð hlotið fulla viðurkenningu sem sagnfræðileg aðferð og nýtur sívaxandi vinsælda meðal þeirra sem fást [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 29. jan 2008

Hlaðvarp - Það er engum för til fjár að brjóta hauga

Fyrr í dag flutti Kristín Huld Sigurðardóttir erindið Það er engum för til fjár að brjóta hauga á hádegisfundi Sagnfræðingafélags Íslands. Þeir sem misstu af þessum skemmtilega fundi geta smellt hér til að hlýða á Kristínu á mp3 formi.

Lesa áfram »

mánudagur, 28. jan 2008

Það er engum för til fjár að brjóta hauga

Þriðjudaginn 29. janúar flytur Kristín Huld Sigurðardóttir fornleifafræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands. Kristín ræðir um vernd fornleifa og viðhorf Íslendinga til minja. Fyrirlesturinn ber heitið Það er engum för til fjár að brjóta haug. Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 17. jan 2008

Fyrirlestur Hrafns Sveinbjarnarsonar aðgengilegur

Fyrirlestur Hrafns Sveinbjarnarsonar, Syndaflóðið kemur eftir vorn dag - um varðveislu íslenskra skjalasafna, er nú aðgengilegur hér á vef Sagnfræðingafélagsins sem .pdf skjal. Smellið hér til að lesa. Fyrirlesturinn hélt Hrafn í Þjóðminjasafni Íslands fyrir fullum sal áheyranda þriðjudaginn 15. janúar s.l. og er hann hluti af hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands.

Lesa áfram »

föstudagur, 11. jan 2008

Hádegisfundir hefjast á nýju ári!

Fyrsti hádegisfundur Sagnfræðingafélags Íslands á nýju ári fer fram þriðjudaginn 15. janúar næstkomandi. Hrafn Sveinbjarnarson sagnfræðingur flytur hádegisfyrirlesturinn Syndaflóðið kemur eftir vorn dag - um varðveislu íslenskra skjalasafna. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla? Syndaflóðið kemur eftir vorn dag - um varðveislu íslenskra skjalasafna. Útdráttur úr fyrirlestri: Skjalasöfn endurspegla það þjóðskipulag og stjórnkerfi [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 22. nóv 2007

Hlaðvarp - Minn staður er hér þar sem Evrópa endar

Fyrr í dag flutti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir erindið Minn staður er hér þar sem Evrópa endar á hádegisfundi Sagnfræðingafélags Íslands. Þeir sem misstu af þessum skemmtilega fundi geta smellt hér til að hlýða á Ingibjörgu á mp3 formi.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 20. nóv 2007

Minn staður er hér þar sem Evrópa endar

Fimmtudaginn 22. nóvember verður sjötti hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands í haust haldinn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, heldur erindi sem nefnist: Minn staður er hér þar sem Evrópa endar. Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Lesa áfram »

Kvöldfundur - Æviskrárritun og ritskoðun

Stjórnir Sögufélags og Sagnfræðingafélags Íslands hafa ákveðið að vera með kvöldfundi um sagnfræðileg efni a.m.k. einu sinni á misseri. ÞRIÐJUDAGINN (annað kvöld) 20. nóvember kl. 20:00 verður sá fyrsti og efnið verður Æviskrárritun og ritskoðun. Þessir fundir eru eingöngu auglýstir á Gammabrekka og heimasíðum félaganna og eru ætlaðir félagsmönnum. Fundurinn verður í húsnæði Sögufélags og [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 19. nóv 2007

Breytt dagsetning hádegisfundar

Sagnfræðingafélag Íslands vekur athygli á því að dagsetning síðasta hádegisfyrirlestrar fyrir jól hefur breyst. Fyrirlestur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur átti að fara fram á morgun, þriðjudag, en hefur vegna óviðráðanlegra orsaka flust aftur til fimmtudags.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 6. nóv 2007

Hlaðvarp - Uppruni Evrópu

Fyrr í dag ræddi Sverrir Jakobsson sagnfræðingur um uppruna Evrópu. Erindi Sverris var hluti af hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands, Hvað er Evrópa?. Þeir sem misstu af þessum skemmtilega fyrirlestri geta smellt hér til að hlýða á hann á mp3 formi.

Lesa áfram »

mánudagur, 5. nóv 2007

Hlaðvarp - Hvað er Evrópa - hugmynd, álfa, ríkjasamband?

Sökum tæknilegra örðugleika hefur það dregist að koma hádegisfyrirlestri Guðmundar Hálfdánarsonar, Hvað er Evrópa - hugmynd, álfa, ríkjasamband? á vefinn. Fyrirlestur Guðmundar er þó nú loks aðgengilegur með því að smella hér. Því miður vantar fyrstu 3 mínúturnar framan á fyrirlesturinn en Guðmundur gaf engu að síður góðfúslegt leyfi sitt fyrir birtingu hans. Leyst hefur [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 2. nóv 2007

Uppruni Evrópu

Þriðjudaginn 6 nóvember verður fimmti hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins í haust haldinn. Sverrir Jakobsson sagnfræðingur fjallar um uppruna Evrópu. Í fyrirlestrinum verður fjallað um tilurð Evrópuhugtaksins, hvenær það fékk pólitískt mikilvægi og í hvaða sögulega samhengi það gerðist. Meðal þeirra sem koma við sögu eru Seifur, Mínos konungur, Heródótos, Nói og synir hans, heilagur Ágústín, Urban II páfi, [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 21. okt 2007

Hvað er Evrópa - hugmynd, álfa, ríkjasamband?

Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins halda áfram þriðjudaginn 23. október. Guðmundur Hálfdanarson, sagnfræðingur, spyr Hvað er Evrópa - hugmynd, álfa, ríkjasamband? Í opinberri umræðu vísar hugtakið Evrópa æ oftar til Evrópusambandsins, á sama hátt og þegar menn segja Ameríka meina þeir gjarnan Bandaríki Norður-Ameríku. Í flestum tilvikum breytir ekki miklu hvernig hugtök sem þessi eru notuð, en þó getur [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 11. okt 2007

Hlaðvarp - Evrópska samkeppniskerfið

Hljóp tíminn frá þér síðasta þriðjudag? Misstir þú af spennandi hádegisfundi? Þú getur tekið gleði þína á ný því hlaðvarp Sagnfræðingafélags Íslands er komið til að vera og miðar að því að auðvelda félagsmönnum að fylgjast með þeirri umræðu sem á sér stað á hádegisfundum. Smellið hér til að hlusta á Axel Kristinsson flytja erindi [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 8. okt 2007

Evrópska samkeppniskerfið

Þriðjudaginn 9. október halda hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélags Íslands "Hvað er Evrópa" áfram. Axel Kristinsson, sagnfræðingur, fjallar um evrópska samkeppniskerfið. Þótt saga Evrópu sé um sumt óvenjuleg er hún ekki eins einstök og Evrópubúar vilja gjarnan ímynda sér. Hún á margt sameiginlegt með sögu annarra samfélaga á ýmsum tímum og í ýmsum heimshlutum. Frá 11. öld og [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 3. okt 2007

Akademísk helgisiðafræði - Hugvísindi og háskólasamfélag

Miðstöð einsögurannsókna í ReykjavíkurAkademíunni kynnir bókina: Akademísk helgisiðafræði -Hugvísindi og háskólasamfélag eftir Sigurð Gylfa Magnússon Bókin Akademísk helgisiðafræði er einsögurannsókn sem er skrifuð eins og spennusaga. Þar er farið í saumana á virkni háskólasamfélagsins; hvernig stofnanir, forsvarsmenn og fræðimenn sem eru hluti af Háskóla Íslands ráða ráðum sínum þegar utanaðkomandi aðilar knýja þar dyra. Höfundur bókarinnar, [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 26. sep 2007

Hlaðvarp - Erum við þá Rómverjar núna?

Hlaðvarp Sagnfræðingafélags Íslands miðar að því að auðvelda félagsmönnum að fylgjast með þeirri umræðu sem á sér stað á hádegisfundum. Smellið hér til að hlusta á Magnús Árna Magnússon flytja erindi sitt frá því fyrr í gær Erum við þá Rómverjar núna? Lesa má lýsingu á efni fyrirlestursins hér.

Lesa áfram »

laugardagur, 22. sep 2007

Erum við þá Rómverjar núna?

Þriðjudaginn 25. september heldur hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands, "Hvað er Evrópa", áfram. Magnús Árni Magnússon, evrópufræðingur, spyr í erindi sínu Erum við þá Rómverjar núna? Í fyrirlestri Magnúsar verður fjallað um grunnspurninguna Hvað er Evrópa?, út frá tengslum við táknmyndir fortíðar og spurningunni um hvaða máli þær kunna að skipta í stjórnmálum samtímans. Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 11. sep 2007

Hlaðvarp Sagnfræðingafélags Íslands

Í vetur verður aftur tekinn upp sá góði siður að hljóðrita hádegisfundi Sagnfræðingafélags Íslands. Verða hljóðritanirnar gerðar aðgengilegar hér á vefsíðu félagsins. Smellið hér til að hlusta á Eirík Bergmann flytja erindi sitt frá því fyrr í dag Er Ísland í Evrópu Lesa má lýsingu á efni fyrirlestursins hér.

Lesa áfram »

miðvikudagur, 5. sep 2007

Er Ísland í Evrópu?

Þriðjudaginn 11. september hefjast hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélags Íslands að nýju. Það er Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent við Háskólann á Bifröst og forstöðumaður Evrópufræðaseturs sem ríður á vaðið í fyrsta hádegisfyrirlestri vetrarins. Eiríkur spyr, hvar á Ísland heima? Tvö gagnstæð öfl hafa undanfarið togtast á um stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna. Eins og á við um önnur [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 25. maí 2007

Hálendi hugans - Landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags Þjóðfræðinga á Íslandi

9. landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðinga á Íslandi verður haldin á hinu nýja Heklusetri á Leirubakka í Landsveit í samvinnu við heimamenn helgina 1.-3. júní 2007. Nánari dagskrá og upplýsingar er að finna hér að neðan:

Lesa áfram »

fimmtudagur, 24. maí 2007

Sögustríð. Greinar og frásagnir um hugmyndafræði

Út er komin bókin Sögustríð eftir dr. Sigurð Gylfa Magnússon sagnfræðing. Í bókinni er að finna sjónarhorn höfundar á þróun og stöðu háskólasamfélaga hér á landi og erlendis. Bókin er að hluta til fræðileg sjálfsævisaga Sigurðar Gylfa þar sem hann rekur margvísleg átök innan hins akademíska heims á undangengnum 15 árum. Að auki er að [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 9. maí 2007

HÁLENDI HUGANS: SKRÁNING HAFIN!

9. landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðinga á Íslandi verður haldin á hinu nýja Heklusetri á Leirubakka í Landsveit í samvinnu við heimamenn helgina 1.-3. júní 2007. Nánari dagskrá og upplýsingar er að finna hér að neðan:

Lesa áfram »

föstudagur, 4. maí 2007

Stefnir í stjórnarkreppu? Fordæmi úr fortíðinni

Málþing um stjórnarmyndanir verður haldið föstudaginn 4. maí á milli klukkan 12:00 og 13:30 í Odda, húsi félagsvísindadeildar Háskóla Íslands. Þingið er haldið á vegum Sagnfræðingafélags Íslands, Stofnunar um stjórnsýslu og stjórnmál og Morgunblaðsins. Dagskrá: Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur: Þingræði og myndun ríkisstjórna, 1944-1959. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur: Stjórnarandstöðumyndunarviðræður, 1971-1995. Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur: Hverju breyttu kosningar? Agnes Bragadóttir blaðamaður: [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 2. maí 2007

Miðlun menningararfs

Þriðjudaginn 8. maí 2007, flytur menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir erindið Miðlun menningararfs í fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands. kl. 12:05-12:55 Það er ekki verkefni stjórnmálamanna eða embættismanna að gefa út fyrirmæli um það hvernig beri að túlka menningararf Íslendinga þótt þeir geti haft sínar skoðanir eins og aðrir. Fyrst og fremst verður þessi túlkun til í fræðasamfélaginu og [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 12. apr 2007

Ævar Kjartansson: Sagan sögð í útvarpi

Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands Þriðjudaginn 17. apríl 2007, kl. 12:05-12:55 Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu Aðgangur er ókeypis og öllum heimill Ævar Kjartansson: Sagan sögð í útvarpi. Vísun í erindi: Ýmsar sögur eru sagðar í útvarpi. Í 77 ár hefur Ríkisútvarpið, rétt einsog aðrar evrópskar þjóðmenningarstöðvar, verið farvegur margs konar sagna, einkasagna og þjóðarsögu. Þeir sem hafa setið við þetta fljót [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 6. apr 2007

Ný stjórn kjörin á aðalfundi

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands var haldinn í húsi Sögufélags, Fischersundi 3, 30. mars 2007. Formaður félagsins, Guðni Th. Jóhannesson, setti fund kl. 16:00. Að tillögu Guðna var Guðmundur Jónsson kosinn fundarstjóri, en síðan var gengið til dagskrár. 1. Skýrsla stjórnar. Formaður kynnti ársskýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2006–2007. Í umræðum um ársskýrsluna tóku til máls: Jón Þ. Þór og Guðmundur [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 1. apr 2007

Ferð til fortíðar. Sögusýningar á Íslandi

Eggert Þór Bernharðsson: Ferð til fortíðar. Sögusýningar á Íslandi. Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands, þriðjudaginn 3. apríl 2007. Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu, kl. 12:05-12:55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Íslendingar eru safna- og sýningaglöð þjóð en á Íslandi eru einna flest söfn í Evrópu miðað við mannfjölda. Talsverð gróska hefur verið í safna- og sýningageiranum á undanförnum [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 25. mar 2007

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands!

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands verður haldinn í húsi Sögufélags við Fischersund í Reykjavík laugardaginn 31. mars. Fundurinn hefst kl. 16:00 og verður dagskrá hans svohljóðandi, í samræmi við lög félagsins sem má finna á heimasíðu þess, www.sagnfraedingafelag.net: 1. Ársskýrsla stjórnar kynnt og lögð fram til samþykktar. 2. Endurskoðaðir ársreikningar félagsins kynntir og lagðir fram til samþykktar. 3. Lagabreytingar [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 13. mar 2007

Arfur og miðlun:Hugmyndafræði og nýjar rannsóknir

Gísli Sigurðsson flytur erindið Arfur og miðlun: Hugmyndafræði og nýjar rannsóknir í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands. Hádegisfundir félagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og hefjast að venju klukkan 12:05 og lýkur klukkan 12:55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Skráning á samtíðinni og rannsóknir á fortíðinni mótast af hugmyndafræði á hverjum tíma; hugmyndafræði sem hefur áhrif [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 6. mar 2007

Þorskastríðin 1958-1976

„Þorskastríð Breta og Íslendinga 1958-1976. Hugleiðingar um ólíka þjóðarhagsmuni, ójafnað í hernaði, stjórnun fjölmiðla og vald stjórnvalda yfir herafla.“ Fyrirlestur í boði Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands og Sagnfræðingafélags Íslands í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu, föstudaginn 9. mars kl. 12:00-13:00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fyrirlesturinn verður á ensku. Fyrirlesari er Andrew Welch, fv. kapteinn í breska sjóhernum, [...]

Lesa áfram »

Þorskastríðin 1958-1976

„Þorskastríð Breta og Íslendinga 1958-1976. Hugleiðingar um ólíka þjóðarhagsmuni, ójafnað í hernaði, stjórnun fjölmiðla og vald stjórnvalda yfir herafla.“ Fyrirlestur í boði Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands og Sagnfræðingafélags Íslands í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu, föstudaginn 9. mars kl. 12:00-13:00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fyrirlesturinn verður á ensku. Fyrirlesari er Andrew Welch, fv. kapteinn í breska sjóhernum, [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 2. mar 2007

Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands, þriðjudaginn 6. mars 2007

Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands, þriðjudaginn 6. mars 2007. Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu, kl. 12:05-12:55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Þjóðveldisöldin kvikmynduð – Ágúst Guðmundsson Útdráttur höfundar: Þegar kvikmynda á eitthvað sem gerist á fyrri tímum fer hópur fólks í rannsóknarvinnu til að finna út eitt og annað um viðkomandi tíma. Þegar kemur að því tímabili sem Íslendingasögurnar gerast á, þjóðveldisöldinni, [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 25. feb 2007

Hvað er Írak? Ástandið í Írak og sagnfræðilegar rannsóknir

Fyrirlestur Magnúsar Þorkels Bernharðssonar í boði Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands og Sagnfræðingafélags Íslands í stofu 101 í Odda, húsi félagsvísindadeildar Háskóla Íslands, fimmtudagskvöldið 1. mars, kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Hvað er eiginlega að gerast í Írak? Hvernig ber að meta og skilja ástandið þar? Hvað getur saga Íraks skýrt fyrir okkur um ástandið [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 21. feb 2007

Styrkur úr Sagnfræðisjóði dr. Björns Þorsteinssonar

Ákveðið hefur verið að veita styrk úr Sagnfræðisjóði dr. Björns Þorsteinssonar fyrir árið 2007, kr. 400.000. Í 4. grein skipulagsskrár sjóðsins stendur: Tilgangur sjóðsins er að styrkja með fjárframlögum stúdenta við nám undir kandídatspróf í sagnfræði og kandídata í sömu grein til að rannsaka - og vinna að ritum um - sérstök verkefni er varða sögu Íslands [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 19. feb 2007

Hádegið 20. febrúar

Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands, þriðjudaginn 20. febrúar 2007. Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu, kl. 12:05-12:55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Í hádeginu þriðjudaginn 20. febrúar fjallar Ómar Ragnarsson um heimildamyndagerð. Ómar mun sérstaklega ræða mynd sem hann er að vinna að um þessar mundir er nefnist “Brúarjökull og innrásirnar í Ísland”. Myndin fjallar um flugvallarstæði rétt norðan við Brúarjökul, [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 8. feb 2007

Fyrirlestrar landsbyggðarráðstefnu 2005 komnir út

Út er komið rit með fyrirlestrum sem fluttir voru á sjöundu landsbyggðarráðstefnu Sagnfræðingafélagsins og Félags þjóðfræðinga sem haldin var í samvinnu við Héraðssafn Austurlands og aðra heimamenn á Eiðum á Fljótsdalshéraði í júní 2005. Ráðstefnuritið er alls 120 blaðsíður. Útgefendur þess eru Héraðsnefnd Múlasýslna og Sagnfræðingafélag Íslands. Ritstjóri er Hrafnkell Lárusson. Ráðstefnuritið kemur út sem fylgirrit [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 30. jan 2007

Heimildagildi heimildamynda

6. febrúar er komið að þriðja hádegisfyrirlestri Sagnfræðingafélagsins á þessu ári. Venju samkvæmt verður hann kl. 12:05-12:55 í fyrirlestrasal Þjóminjasafns Íslands. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Kvikmyndin hefur verið talin eina tímavélin, því að í henni sést, hvað gerðist. En dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, sem gert hefur margar heimildamyndir, bendir á, að hvort [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 23. jan 2007

BÓKAFUNDURINN

Hinn árlegi bókafundur Sögufélags og Sagnfræðingafélags Íslands verður haldinn í húsakynnum Sögufélags í Fischersundi, þriðjudagskvöldið 30. janúar kl. 20:00. Ritin sem fjallað verður um eru: - Upp á sigurhæðir eftir Þórunni Erlu Valdimarsdóttur. Umfjöllun: Sigríður Th. Erlendsdóttir. - Erlendir straumar og íslensk viðhorf eftir Inga Sigurðsson. Umfjöllun: Páll Björnsson. - Óvinir ríkisins eftir Guðna Th. Jóhannesson. Umfjöllun: Rósa Magnúsdóttir. - [...]

Lesa áfram »

Opnun Miðstöðvar munnlegrar sögu

Miðstöð munnlegrar sögu verður opnuð við hátíðlega athöfn í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, Þjóðarbókhlöðu, föstudaginn 26. janúar. Athöfnin hefst kl. 15.00. Miðstöðin mun beita sér fyrir söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á munnlegum heimildum sem snerta sögu lands og þjóðar. Munnleg saga notar hið talaða orð, frásagnir fólks af atburðum eða lífshlaupi sínu, til að afla [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 17. jan 2007

Sögukennsla: Nema hvað? Hvernig?

Annar hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins á þessu ári, þriðjudaginn 23. janúar 2007, kl. 12:05-12:55 í fyrirlestrasal Þjóminjasafns Íslands. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Af og til sprettur upp umræða um kanón í sagnfræði og sögukennslu enda hafa allir skoðun á því hver er nauðsynlegasta söguþekkingin. Þegar gerðar voru miklar breytingar á aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla fyrir nokkrum árum [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 5. jan 2007

Hvort kemur á undan, rannsóknir eða miðlun?

Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands, þriðjudaginn 9. janúar 2007. Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu, kl. 12:05-12:55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Útdráttur: Sagnfræðingar geta ekki fengist við rannsóknir án hliðsjónar af því að ætlunin er að miðla einhverjum sannleika um fortíðina. Rannsókn hlýtur því jafnan að taka mið af þeim spurningum sem lagðar er til grundvallar. Val á [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 17. des 2006

Sannast sagna: Efasemdir um gildi sannleikans fyrir sagnfræði og hvernig má eyða þeim

Síðasti hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins á þessu ári, þriðjudaginn 19. desember 2006, kl. 12:05-12:55. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Í erindinu verður fjallað um nokkrar efasemdir um gildi sannleikans fyrir sagnfræði sem sprottið hafa úr ranni heimspekinnar eða fengið byr undir báða vængi þar. Einkum verður hugað að efasemdum sem spretta af hugmyndum um grunngerð tungumálsins, ofuráherslu á [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 9. des 2006

Bókakynning 12. desember

Árlegur bókakynningarfundur Sögufélags og Sagnfræðingafélags Íslands verður í húsi Sögufélags við Fischersund þriðjudagskvöldið 12. desember. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og eru allir velkomnir á hann. Léttar veitingar verða í boði. Fyrri fundir hafa verið fjörlegir og fræðandi og víst er að engin breyting verður á í þetta sinn. Eftirfarandi bækur verða kynntar og ræddar í [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 5. des 2006

Ályktun um Íslendingabók

Stjórn Sagnfræðingafélags Íslands samþykkti og sendi frá sér eftirfarandi ályktun 3. desember 2006: Stjórn Sagnfræðingafélags Íslands lýsir þungum áhyggjum af því ástandi sem skapast með uppsögnum starfsmanna Íslendingabókar. Gagnagrunnur Íslendingabókar hefur nýst fræðimönnum á undanförnum árum við rannsóknir og sparað þeim ómælda vinnu. Þá hefur almenningur sótt mikið í grunninn. Meðal þeirra sem láta af störfum [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 2. des 2006

Er til rétt saga? Um kanón í sagnfræði og sögukennslu

Hádegisfundur Sagnfræðingafélags Íslands, Þjóðminjasafni Íslands, þriðjudaginn 5. desember kl. 12:05-12:55. Sagan snýst ekki bara um að finna sannleikann um fortíðina heldur líka að velja þau viðfangsefni og atriði sem eru þess virði að segja sannleikann um. Í erindinu er sagt frá viðleitni manna til að festa slík atriði í sessi með valdboði, umvöndunum eða gylliboðum. Einkum [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 17. nóv 2006

Er sagan bara sjónarmið? Spurningin um hlutlægni í sagnfræði

Hádegisfundur Sagnfræðingafélags Íslands í Þjóðminjasafninu, þriðjudaginn 21. nóvember kl. 12:05-12:55. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Í útdrætti fyrirlesara, Guðmundar Jónssonar, segir: Allt frá því að sagnfræðin gerði tilkall til þess að teljast til vísinda á 19. öld hefur hlutlægnishugtakið verið miðlægt í þekkingarfræði greinarinnar. Sagnfræðingar töldu að hægt væri að komast að öruggum, hlutlægum sannleika um fortíðina [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 10. nóv 2006

Agnes Arnórsdóttir: Hvað er íslensk sagnfræði?

Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands, þriðjudaginn 14. nóvember 2006 kl. 12:05-12:55. Fyrirlesturinn mun fjalla um hvernig hin skráða íslenska saga hefur frá upphafi verið skrifuð út frá ákveðnum miðlægum hneigðum. Hinn kristni menningararfur var þar auðvitað allsráðandi, en sérstaklega voru elstu sagnaritarnir uppteknir af spurninginni um hvaða ættir og bændahöfðingjar hefðu numið hin mismunandi landsvæði og seinna hvernig [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 2. nóv 2006

Munnlegar heimildir. Möguleikar og sannleiksgildi

Hádegisfyrirlestur, Þjóðminjasafni Íslands, 7. nóvember 2006, 12:05-12:55 Í fyrirlestrinum verður fjallað um munnlegar heimildir, sannleiksgildi þeirra og þá möguleika sem notkun þeirra felur í sér. Rætt verður um tengsl munnlegra heimilda við aðrar heimildir og hvernig þær aðferðafræðilegu spurningar, sem sagnfræðingurinn þarf að horfast í augu við þegar hann notar munnlegar heimildir, endurspegla þann vanda sem [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 31. okt 2006

Rannsóknaræfing á hausti

Rannsóknaræfing Félags íslenskra fræða – í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna, sagnfræðingafélag Íslands, Félag þjóðfræðinga á Íslandi og Íslenska málfræðifélagið – verður að þessu sinni haldin við lok Hugvísindaþings, í Tunglinu, Iðusölum við Lækjargötu, laugardagskvöldið 4. nóvember næstkomandi. Húsið opnar klukkan 19.30 – borðhald hefst kl. 20.00 Veitingar Eftir hin andlegu hlaðborð Hugvísindaþings er tilvalið að gæða sér á blönduðu [...]

Lesa áfram »

BA-kvöld Fróða

Föstudagskvöldið 3. nóvember mun Fróði halda BA-kvöld þar sem þrír nemendur sem lokið hafa BA-prófi í sagnfræði kynna efni lokaritgerða sinna. Þau þrjú eru: Andri Steinn Snæbjörnsson, Jóhanna Ýr Jónsdóttir og Kristbjörn Helgi Björnsson. BA-kvöldið verður haldið í húsnæði Reykjavíkurakademíunnar, Hringbraut 121, og hefst kl. 20:00. Léttar veitingar verða í boði Fróða.

Lesa áfram »

mánudagur, 16. okt 2006

Hin þrjú andlit Klíó: Átökin í sagnfræðinni

Getur sagnfræði hjálpað fólki að grenna sig? Það var upphaflegt heiti næsta erindis í hádegisfundaröð félagsins sem verður haldinn þriðjudaginn 24. október, kl. 12:05-12:55, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesari er Árni Daníel Júlíusson og vera má að upphaflegri spurningu verði svarað. Annars segir í útdrætti fyrirlestrar: Að undanförnu hafa orðið hörð átök í sagnfræði hér heima [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 11. okt 2006

Aðalfundur Sögufélags

Aðalfundur Sögufélags verður haldinn laugardaginn 14. október í húsakynnum félagsins að Fischersundi 3 og hefst kl. 15:00. 1. Venjuleg aðalfundarstörf (ca. 45 mínútur) 2. Rósa Magnúsdóttir sagnfræðingur flytur fyrirlestur: Krústsjov í Ameríku: Skilningur Sovétborgara á "friðsamlegri sambúð" við Bandaríkin árið 1959. Í fyrirlestrinum verður fjallað um viðbrögð Sovétmanna við ferð Krústsjovs til Bandaríkjanna í september árið 1959. [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 5. okt 2006

Stalíngrad og Berlín. Sagnfræðirannsóknir í Rússlandi

Þriðjudaginn 10. október heldur Antony Beevor fyrirlestur á vegum Sagnfræðingafélags Íslands í hátíðasal Háskóla Íslands. Beevor er heimskunnur rithöfundur og sagnfræðingur; bækur hans hafa selst í milljónum eintaka og verið þýddar á fjölda tungumála. Þekktust má telja verk hans um orrustuna um Stalíngrad og fall Berlínar en hann vinnur nú að riti um D-daginn 1944. [...]

Lesa áfram »

Marwick allur

Breski sagnfræðingurinn Arthur Marwick er fallinn frá. Marwick var heiðursgestur á fyrsta íslenska söguþinginu og er mörgum þinggestum minnisstæður æ síðan. Sagnfræðinemar minnast hans einnig sem höfundar bókarinnar The Nature of History sem var lengi skyldulesefni í námskeiðinu Aðferðir. Fróðleg, einlæg og gagnrýnin eftirmæli um Marwick má finna í The Telegraph og í The [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 2. okt 2006

Tölvunámskeið fyrir sagnfræðinga.

Í septembermánuði sendum við auglýsingu á Gammabekku þar sem áhugi sagnfræðinga fyrir Access gagnagrunnsnámskeiði var kannaður. Undirtektir voru það góðar að ákveðið hefur verið að halda námskeið á vegum Tölvu-og verkfræðiþjónustunnar og er tímasetning miðuð við miðjan nóvember. Hámarkskostnaður hvers og eins er 22.000 krónur en lækkar ef ákveðinn lágmarksfjöldi þátttakenda næst. Námskeiðslýsing er [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 26. sep 2006

DET TRAUMATISKE ØJEBLIK

DET TRAUMATISKE ØJEBLIK Fotografiet, differancen og mødet med virkeligheden. Í ágúst síðastliðnum kom bókin Det traumatiske øjeblik eftir Sigrúnu Sigurðardóttur út í ritröðinni Rævens Sorte Bibliotek hjá forlaginu Politisk Revy í Kaupmannahöfn. Í bókinni fjallar Sigrún um ljósmyndir og áhrif þeirra á endurminningar, sameiginlegt minni og veruleikasýn einstaklinga og hópa fólks. Áhersla er lögð á samspil tungumáls [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 21. sep 2006

Hvað er satt í sagnfræði?

Næstkomandi þriðjudag, 26. september, mun Anna Agnarsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands flytja fyrirlesturinn Hvað er satt í sagnfræði? í sal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fundurinn hefst klukkan 12:05 og lýkur 12:55. Um fyrirlestur Önnu segir: Hlutverk sagnfræðingsins er að leita að sannleikanum [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 20. sep 2006

Ályktun stjórnar Sagnfræðingafélags Íslands 20. september 2006

Stjórn Sagnfræðingafélagsins fundaði í dag og voru takmarkanir á aðgangi að opinberum gögnum meðal þess sem var til umræðu. Stjórnin samþykkti eftirfarandi ályktun. Ályktun stjórnar Sagnfræðingafélags Íslands 20. september 2006 Í samræmi við siðareglur félagsins lýsir stjórn Sagnfræðingafélags Íslands furðu sinni á þeim takmörkunum á aðgangi að gögnum um símahleranir í vörslu Þjóðskjalasafns Íslands sem fjallað [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 15. sep 2006

Að skrifa konur inn í þjóðarsögu

Gunnar Karlsson prófessor í sagnfræði flytur hádegisfyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í kvenna-og kynjafræðum fimmtudaginn 21. sept. kl. 12.15-13.15 í Norræna húsinu. Yfirlitsrit um sögu hafa jafnan speglað valdastöðu karla í samfélögum fortíðar og því fjallað margfalt meira um karlmenn en konur. Þetta á jafnt við um svokallaða mannkynssögu sem Íslandssögu og yfirlit fyrir almenning sem námsbækur. [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 14. sep 2006

Hugvísindaþing 2006

Hugvísindaþing verður haldið 3-4 nóvember næstkomandi. Hugvísindastofnun skipuleggur þingið í samvinnu við Guðfræðideild og ReykjavíkurAkademíuna. Stefnt er að metnaðarfullu þingi sem gefi fræðimönnum og almenningi góða mynd af hugvísindum á Íslandi, með áherslu á því nýjasta og markverðasta sem á döfinni er í fræðunum. Gert er ráð fyrir jafnt skipulegum málstofum sem stökum fyrirlestrum og [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 13. sep 2006

Þórarinn Eldjárn í Víðsjá Rásar eitt

Benda má á að á netinu er hægt að hlusta á viðtal við Þórarin Eldjárn, sem flutti þriðjudaginn 12. september fyrsta erindið í fundaröð Sagnfræðingafélags Íslands þennan vetur. Viðtalið er fróðlegt og skemmtilegt, eins og erindið var, og hlusta má á það hér.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 12. sep 2006

Hádegisfundaröð Sagnfræðingafélagsins hafin

Núna á hádegi þriðjudagsins 12. september hefst hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands á ný. Þema raðarinnar að þessu sinni er: „Hvað er sagnfræði? Rannsóknir og miðlun.“ Þórarinn Eldjárn rithöfundur hefur leikinn með erindi sem nefnist Ljúgverðugleiki. Íslendingar hafa tekið sögulegum skáldsögum Þórarins vel og má þar nefna Brotahöfuð og Baróninn. Þær bækur vekja ýmsar skemmtilegar spurningar um tengsl [...]

Lesa áfram »

Íslenskir sagnfræðingar. Fyrra bindi komið út.

Nýja bókin, Íslenskir sagnfræðingar. Fyrra bindi. Sagnfræðingatal og saga Sagnfræðingafélags Íslands. Ritstjórar Ívar Gissurarson, Páll Björnsson, Sigurður Gylfi Magnússon og Steingrímur Steinþórsson, er komin út. Hún kom úr prenti síðdegis á fimmtudag og eru allir sagnfræðingar hvattir til að tryggja sér stéttartalið á frábæru verði hjá útgefanda sem allra fyrst. Pantið núna í gegnum eftirfarandi veffang: www.skrudda.is. Nýja bókin kostar þessa [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 7. sep 2006

Fréttabréfið er komið út

Fréttabréf Sagnfræðingafélagsins er komið út og var í dag sent af stað til félaga. Athugið að nálgast má mörg eldri tölublöð fréttabréfsins hér

Lesa áfram »

föstudagur, 10. mar 2006

Engill sögunnar á aðalfundi Sagnfræðingafélags Íslands

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands verður haldinn í húsi Sögufélags við Fischersund í Reykjavík laugardaginn 18. mars. Kl. 16:00, áður en venjuleg aðalfundarstörf hefjast, flytur Sigrún Sigurðardóttir sagnfræðingur og menningarfræðingur fyrirlestur sem nefnist „Engill sögunnar. Um díalektískar myndir, óvæntar minningar og fortíðina í sjálfri mér.“ Í fyrirlestrinum verður fjallað um sam(ráðs)fund fortíðar og nútíðar út frá kenningum [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 18. feb 2006

Gaman er að koma í Keflavík

Gaman er að koma í Keflavík. Landsbyggðarráðstefna Félags þjóðfræðinga á Íslandi, Sagnfræðingafélags Íslands og heimamanna, Duus-húsum í Reykjanesbæ, laugardaginn 4. mars 2006. Dagskrá er sem hér hljóðar: 08:00 Rúta frá Nýja Garði 09:00-10:30 Kynnis- og fræðsluferð um Keflavíkurflugvöll Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, rekur þær breytingar sem orðið hafa á umsvifum þess undanfarin ár 10:30-10:45 Setning ráðstefnunnar, Duus-húsum 10:45-12:15 [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 20. jan 2006

Hinn árlegi bókafundur

Bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags Árlegur bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags verður haldinn í húsi Sögufélags við Fischersund miðvikudagskvöldið 1. febrúar, og hefst stundvíslega kl. 20:00. Rætt verður um eftirtalin rit: Bragi Þorgrímur Ólafsson sagnfræðingur fjallar um rit Guðjóns Friðrikssonar, Ég elska þig stormur. Ævisaga Hannesar Hafstein. Dagný Heiðdal listfræðingur fjallar um rit Hrafnhildar Schram, Huldukonur [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 29. nóv 2005

Bókaveisla Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags

Hin árlega bókaveisla Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags verður haldin þriðjudagskvöldið 13. desember í húsi Sögufélags í Fischersundi. Þar munu höfundar nokkurra bóka af sögulegum toga kynna verk sín í stuttu máli. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Léttar veitingar verða í boði á vægu verði. Bókaveislan hefst kl. 20:00. Eftirtaldir höfundar segja frá verkum sínum: Guðjón [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 15. nóv 2005

Jólarannsóknaræfing, 3. desember 2005

Jólarannsóknaræfing Félags íslenskra fræða, Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðing á Íslandi verður haldin í sal Siglingaklúbbsins Brokeyjar laugardagskvöldið 3. desember næstkomandi. Húsið opnar klukkan 19.00 – borðhald hefst kl. 20.00. Veitingar: Blandað smáréttahlaðborð, gómsætt og girnilegt! Meðal rétta má nefna kjúklinga- og lambakjötsspjót, snittur, tapas, tígrisrækjur og sæta eftirrétti. Drykkjarföng (hvítvín, rauðvín, bjór og gos) verða seld [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 2. okt 2005

Ályktun stjórnar Sagnfræðingafélags Íslands um ráðningu á höfundi til ritunar á sögu þingræðis á Íslandi

Stjórn Sagnfræðingafélags Íslands lýsir yfir undrun á vali forsætisnefndar Alþingis á höfundi til að rita sögu þingræðis á Íslandi. Sú ákvörðun nefndarinnar að ráða til verksins Þorstein Pálsson, sendiherra og fyrrverandi alþingismann og ráðherra, frekar en að leita til einhvers úr hópi fjölmargra vel menntaðra og reyndra sagnfræðinga í landinu vekur upp alvarlegar spurningar um [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 27. maí 2005

Robb Robinson í ReykjavíkurAkademíunni

Mánudaginn 6. júní flytur breski sagnfræðingurinn Robb Robinson fyrirlestur í ReykjavíkurAkademíunni sem nefnist "Some aspects of the evolution of British fisheries policy and fishing limits, c. 1800-1976." Robb Robinson er höfundur bókarinnar Trawling. The Rise and Fall of the British Trawl Fishery. Hann er auk þess einn aðalhöfunda nýlegs rits um fiskveiðisögu Englendinga og meðhöfundur [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 24. maí 2005

Hvað næst?

Mánudaginn 6. júní flytur breski sagnfræðingurinn Robb Robinson fyrirlestur í ReykjavíkurAkademíunni sem nefnist "Some aspects of the evolution of British fisheries policy and fishing limits, c. 1800-1976." Robb Robinson er höfundur bókarinnar Trawling. The Rise and Fall of the British Trawl Fishery. Hann er auk þess einn aðalhöfunda nýlegs rits um fiskveiðisögu Englendinga og meðhöfundur [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 12. apr 2005

Hitler og Che á hvíta tjaldinu: goðsagnir og veruleiki

Sagnfræðingafélag Íslands boðar til fundar um tvær kvikmyndir sem sýndar hafa verið á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík að undanförnu: Der Untergang sem fjallar um síðustu daga Hitlers og liðsmanna hans í Berlín 1945 og Diarios de motocicleta sem greinir frá ferðalagi hins unga Ernestos "Che" Guevara og vinar hans um Suður-Ameríku árið 1952. Báðar myndirnar [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 2. apr 2005

Módernisminn ræðst gegn upplýsingunni: Hugleiðing um togstreituna á milli bresku líffræðinganna Julians Huxleys og Lancelots Hogben

Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur flytur á fimmtudaginn kemur, 7. apríl, fyrirlestur með þessu heiti í húsi Sögufélags við Fischersund í Reykjavík. Fyrirlesturinn hefst kl. 20:00 og er ókeypis og öllum opinn. Léttar veitingar verða í boði. Allir áhugamenn um sögu og vísindi eru hvattir til að mæta! Útdráttur erindis: Á tímabilinu 1880-1930 tókust upplýsingin, síð-rómantíkin [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 5. mar 2005

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands verður haldinn í húsi Sögufélags við Fischersund í Reykjavík laugardaginn 19. mars næstkomandi og hefst kl.16:30. Dagskrá: Ársskýrsla stjórnar kynnt og lögð fram til samþykktar Endurskoðaðir ársreikningar félagsins kynntir og lagðir fram til samþykktar Lagabreytingar (engar tillögur að lagabreytingum hafa borist stjórn félagsins) Kjör stjórnar. Kjör tveggja endurskoðenda reikninga og tveggja fulltrúa í [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 24. feb 2005

Ályktun samþykkt á fundi Sagnfræðingafélags Íslands 23. febrúar 2005

Á fundi Sagnfræðingafélags Íslands þann 23. febrúar sl. um aðgengi að heimildum á söfnum, var samþykkt eftirfarandi ályktun sem Bragi Þorgrímur Ólafsson bar upp fyrir hönd stjórnar félagsins: Fundur Sagnfræðingafélags Íslands haldinn á Þjóðskjalasafni 23. febrúar 2005 ítrekar eftirfarandi ályktun sem samþykkt var á málþingi félagsins þann 1. apríl árið 1989: Mikilvæg forsenda fyrir rannsóknum í sagnfræði [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 9. feb 2005

Söfnin og sagnfræðin

Fundur Sagnfræðingafélags Íslands um aðgengi að heimildum á söfnum, haldinn á Þjóðskjalasafni Íslands, Laugavegi 162, miðvikudaginn 23. febrúar kl. 16:00-17:30. Greiður aðgangur að heimildum sem varðveittar eru á söfnum er mikið hagsmunamál þeirra sem stunda sagnfræðirannsóknir - og þetta á ekki hvað síst við um skjalasöfn. Það er brýnt að samband sagnfræðinga við söfn sé byggt [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 17. jan 2005

Bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags

Árlegur bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags verður haldinn miðvikudagskvöldið 2. febrúar í húsi Sögufélags við Fischersund. Þrír sagnfræðingar munu þar gagnrýna þrjár bækur um sögu og samtíð sem komu út á nýliðnu ári. Sverrir Jakobsson fjallar um bók Gunnars Karlssonar,"Goðamenning. Staða og áhrif goðorðsmanna í þjóðveldi Íslendinga". Erla Hulda Halldórsdóttir ræðir um bók Matthíasar [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 3. des 2004

Bókaveislan í desember

Hefðbundin bókaveisla Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags verður haldin fimmtudagskvöldið 16. desember í húsi Sögufélags í Fischersundi. Þarna gefst gott tækifæri til að fræðast um ýmis ný rit um sögu landsins. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir. Aðstandendur lofa skemmtilegri og fræðandi kvöldstund í hinum notalegu húsakynnum Sögufélags. Léttar veitingar verða á boðstólum. Bókaveislan [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 27. nóv 2004

Jólarannsóknaræfing 11. desember

Árleg jólarannsóknaræfing Félags íslenskra fræða, Sagnfræðingafélags Íslands og Reykjavíkurakademíunnar verður haldin í Iðnó næsta laugardag. Húsið opnar kl. 19. Í boði er þriggja rétta glæsilegur jólakvöldverður. Veislustjóri verður Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur sem m.a. mun veita heppnum gestum kvöldsins bókagjöf frá Bjarti og JPV útgáfum. Ræðumaður kvöldsins verður Guðni Elísson og að loknu borðhaldi tekur tónlist og [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 3. sep 2004

Ráðherrabókin: Þarfaþing eða endurtekningar í vönduðum umbúðum?

Sagnfræðingafélag Íslands boðar til fundar um forsætisráðherrabókina nýju á föstudaginn 17. september kl. 12:00-13:15. Frummælendur verða Ólafur Teitur Guðnason, ritstjóri bókarinnar, Hilma Gunnarsdóttir sagnfræðingur og Jón Þór Pétursson sagnfræðingur. Fundurinn verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni (gamla JL-húsinu), Hringbraut 121, Reykjavík, 4. hæð. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Rætt verður um meinta kosti og galla bókarinnar [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 30. maí 2004

Forsetinn og stjórnmálin að fornu og nýju

Sagnfræðingafélag Íslands og Félag stjórnmálafræðinga boða til fundar miðvikudaginn 9. júní um pólitískt hlutverk forseta Íslands frá stofnun lýðveldis til okkar daga. Fundurinn verður haldinn í Reykjavíkur Akademíunni, Hringbraut 121 (gamla JL-húsinu) og stendur frá 12:00 til 13:30. Þrír framsögumenn flytja erindi á fundinum: Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands: "Pólitísk völd og [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 7. mar 2004

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands fer fram í húsi Sögufélags í Fischersundi laugardaginn 27. mars 2004 og hefst hann kl. 16:30. Dagskrá: 1) AÐALFUNDARSTÖRF Ársskýrsla stjórnar kynnt og lögð fram til samþykktar Endurskoðaðir ársreikningar félagsins kynntir og lagðir fram til samþykktar Lagabreytingar Kjör stjórnar. Kjör tveggja endurskoðenda reikninga og tveggja fulltrúa í Landsnefnd íslenskra sagnfræðinga til eins árs Ákvörðun [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 16. jan 2004

Bókafundur Sagnfræðingafélagsins

Bókafundur Sagnfræðingafélagsins verður haldinn í Sögufélagi fimmtudagskvöldið 29. janúar kl. 20. Þrjú nýútkomin rit verða gagnrýnd og höfundar Sögu Íslands og Sögu Reykjavíkur svara: Saga Íslands VI eftir Helga Þorláksson. Guðrún Ása Grímsdóttir gagnrýnir. Saga Reykjavíkur 870-1870 I-II eftir Þorleif Óskarsson. Hrefna Róbertsdóttir gagnrýnir. Öxin og jörðin eftir Ólaf Gunnarsson. Inga Huld Hákonardóttir gagnrýnir. Fundarstjóri er [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 29. des 2003

Fundur í Þjóðminjasafni Íslands

Sagnfræðingafélagið og Félag sögukennara boða til fundar í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu fimmtudagskvöldið 8. janúar kl. 20:30. Dagskrá: Undirbúningur nýrrar grunnsýningar Þjóðminjasafns Íslands - Guðrún Guðmundsdóttir sýningarstjóri Grunnhugmynd sýningarinnar - Brynhildur Ingvarsdóttir sviðstjóri miðlunarsviðs Vinna að sýningargerð - Lilja Árnadóttir fagstjóri safnkosts Mótun safnfræðslu - Sigrún Kristjánsdóttir fagstjóri safnfræðslu Að loknum erindum verður boðið upp á kaffi [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 8. nóv 2003

"Það vinnur aldrei neinn sitt dauðastríð"

Fimmtudagskvöldið 20. nóvember mun Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur halda erindi á sameiginlegum fundi Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags. Fjallað verður um baráttu Breta fyrir þröngri landhelgi 1948-64 og byggist á doktorsritgerð Guðna, Troubled Waters. Cod War, Fishing Disputes, and Britain's Fight for the Freedom of the High Seas, 1948-64 en Guðni mun verja hana við University [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 3. nóv 2003

Manntalsafmæli 15. nóvember 2003

Vakin er athygli á málþingi um manntalið 1703 sem haldið verður í húsakynnum Hagstofu Íslands hinn 15. nóvember næstkomandi. Hagstofa Íslands, Félag um 18. aldar fræði, Sagnfræðingafélag Íslands, sagnfræðiskor Háskóla Íslands og Þjóðskjalasafn Íslands standa að þinginu sem haldið er til að minnast 300 ára afmælis manntalsins. Meðal fyrirlesara er hinn kunni breski fræðimaður John [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 25. mar 2003

Framtíð borga(r)

Ráðstefna á vegum Sagnfræðingafélags Íslands og Borgarfræðaseturs STAÐUR: Norræna húsið DAGUR: Föstudagur 4. apríl 2003 TÍMI: Kl. 13:15 16:00 UMRÆÐUSTJÓRI: Stefán Ólafsson - forstöðumaður Borgarfræðaseturs Dagskrá: Páll Björnsson - sagnfræðingur við Hugvísindastofnun HÍ: Borgarmúrar úr fortíð og samtíð Ásgeir Jónsson - hagfræðingur við Hagfræðistofnun HÍ: Hversu lengi mun Reykjavík vaxa? Halldór Gíslason - arkitekt og deildarstjóri hönnunardeildar LHÍ: Úr viðjum [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 23. mar 2003

Reykjavík frá alþjóðlegum sjónarhóli

Þriðjudaginn 1. apríl flytur Stefán Ólafsson þjóðfélagsfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Reykjavík frá alþjóðlegum sjónarhóli". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Í fyrirlestrinum er fjallað um stöðu og einkenni Reykjavíkur í samanburði við ýmsar erlendar borgir. Í fyrstu verða [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 17. mar 2003

Íslendingabók á aðalfundi félagsins

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands verður haldinn í húsi Sögufélags í Fischersundi laugardaginn 22. mars og hefst hann kl. 16:30. Áður en gengið verður til fomlegra aðalfundarstarfa mun Friðrik Skúlason tölvu- og ættfræðingur flytja erindi um ættfræðigrunninn Íslendingabók sem opnaður var á netinu nýlega. Friðrik mun reifa þá möguleika sem gagnagrunnur af þessu tagi getur opnað þeim [...]

Lesa áfram »

Skáldaðar borgir

Þriðjudaginn 18. mars flytur Ástráður Eysteinsson bókmenntafræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Skáldaðar borgir". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipulagsmál. Borgir leika mikið hlutverk sem staðir og sögusvið í nútímabókmenntum. Gjarnan [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 3. mar 2003

Fruma í borgarlíkama

Þriðjudaginn 4. mars flytur Sigrún Sigurðardóttir sagnfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Fruma í borgarlíkama. Um Walter Benjamin og Paul Virilio". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipulagsmál. Í fyrirlestrinum verður fjallað [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 16. feb 2003

Borg minninganna

Þriðjudaginn 18. febrúar flytur Sigríður Björk Jónsdóttir sagn- og listfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Borg minninganna". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipulagsmál. Í fyrirlestrinum verður m.a. fjallað um hugmyndir ítalska [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 4. feb 2003

Bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands

Árlegur bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands verður haldinn í húsnæði Sögufélags í Fischersundi miðvikudaginn 5. febrúar og hefst hann fyrr en venja hefur verið um kvöldfundi félagsins eða kl. 20:00. Vinsamlega látið vita ef ykkur finnst of snemmt að hefja fundi á þessum tíma. Fjallað verður um þrjár nýútkomnar bækur. Kristján Sveinsson sagnfræðingur ræðir um bók Helga Skúla [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 3. feb 2003

Foruga fagra borg

Þriðjudaginn 4. febrúar flytja Skúli Sigurðsson vísindasagnfræðingur og Stefán Pálsson sagnfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Foruga fagra borg". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipulagsmál. Í erindi sínu munu fyrirlesarar einbeita [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 19. jan 2003

Óregla á almannafæri

Þriðjudaginn 21. janúar heldur Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Óregla á almannafæri". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipulagsmál. Fyrirlesturinn fjallar um spurninguna hvernig samfélagið heldur uppi reglu á [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 5. jan 2003

Borgin: rými - flæði - byggð

Þriðjudaginn 7. janúar heldur Sigrún Birgisdóttir arkitekt fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Borgin: rými - flæði - byggð". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipulagsmál. Fyrirlesturinn mun fjalla um einkenni hinnar vestrænu [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 9. des 2002

Uppskeruhátíð Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags

STAÐUR: Hús Sögufélags við Fischersund. DAGUR: Fimmtudagur 12. desember. TÍMI: Húsið opnar kl. 20:00 og dagskráin hefst kl. 20:30. SAMKOMUSTJÓRI: Eggert Þór Bernharðsson. Fjölmargir sagnfræðingar eru þátttakendur í jólabókaflóðinu í ár. Með þessari dagskrá vilja félögin auðvelda fólki að glöggva sig á úrvalinu. Hver höfundur fær sex mínútur til að segja stuttlega frá sínu verki og því sem kom mest [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 22. nóv 2002

Jólarannsóknaræfing

Síðastliðin tvö ár hefur Félag íslenskra fræða haldið Jólarannsóknaræfingu sína í samstarfi við Sagnfræðingafélagið. Nú bætist annar samstarfsaðili við, ReykjavíkurAkademían. Fagnaðurinn verður haldinn í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum laugardaginn 7. desember. Húsið opnar kl. 18:00. Eftir fordrykk hefst borðhald kl. 19:00. Hátíðarerindið flytur Guðrún Nordal og nefnist það "Egill, Snorri og plús ex". Tómas R. og félagar leika Suður-ameríska [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 16. nóv 2002

Skipulag byggðar á Íslandi

Þriðjudaginn 19. nóvember heldur Trausti Valsson skipulagsfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Skipulag byggðar á Íslandi. Útkoma yfirlitsrits". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipulagsmál. Í fyrirlestrinum mun Trausti kynna helstu niðurstöður [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 31. okt 2002

Reykjavík - frá götum til bílastæða

Þriðjudaginn 5. nóvember heldur Ágústa Kristófersdóttir sagn- og listfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Reykjavík - frá götum til bílastæða". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Í fyrirlestrinum verður rætt um nokkra þætti í skipulagssögu Reykjavíkur frá tímabilinu 1930 til [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 18. okt 2002

Þróun jaðarsvæða Reykjavíkur

Þriðjudaginn 22. október heldur Sigríður Kristjánsdóttir skipulagsfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Þróun jaðarsvæða Reykjavíkur". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og menningu. Í fyrirlestrinum verður fjallað um formfræði borga (urban morphology), þ.e. [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 14. okt 2002

Á mörkum lífs og dauða

Ólöf Garðarsdóttir sagnfræðingur heldur fyrirlestur á opnum fundi Sagnfræðingafélags Íslands fimmtudaginn 17. október. Erindið nefnist „Á mörkum lífs og dauða. Ungbarnadauðinn á Íslandi 1770-1920“ og byggir hún það á doktorsritgerð sinni sem hún varði í júní síðastliðnum við háskólann í Umeå í Svíþjóð. Rannsóknin var liður í norrænu verkefni um þróun ungbarna- og barnadauða á [...]

Lesa áfram »

þriðjudagur, 8. okt 2002

Hnattvæðing eða „islamvæðing“?

Magnús Þorkell Bernharðsson, lektor í miðausturlandafræðum og íslömskum fræðum við Hofstraháskólann í New York, verður frummælandi á hádegisrabbfundi Sagnfræðingafélags Íslands og ReykjavíkurAkademíunnar mánudaginn 14. október. Yfirskrift fundarins er Hnattvæðing eða „islamvæðing“? Ástand og horfur í Miðausturlöndum. Magnús er sérfræðingur í málefnum þessa heimshluta og er því mikill fengur af því að fá hann á [...]

Lesa áfram »

miðvikudagur, 2. okt 2002

Matmálstímar og borgarmyndun

Þriðjudaginn 8. október heldur Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Matmálstímar og borgarmyndun". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og menningu. Útþensla byggðar í Reykjavík á 20. öld hafði margháttuð [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 28. sep 2002

Fyrirlestraröð: Samvinnuhreyfingin í sögu Íslands

Áhugahópur um samvinnusögu og Sögufélag gangast fyrir fyrirlestraröð í október í húsakynnum Sögufélags að Fischersundi 3 í Reykjavík. Fundirnir, sem eru fimm talsins, verða á þriðjudagskvöldum klukkan 20.15-22.15. Tilefnið er að 20. febrúar síðastliðinn voru liðin 100 ár frá stofnun Sambands íslenskra samvinnufélaga að Ystafelli í Suður-Þingeyjarsýslu, en Sambandið heyrir nú sögunni til sem fyrirtæki. Inngangur [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 19. sep 2002

Hvað er borg? - Guðjón Friðriksson á hádegisfundi

Þriðjudaginn 24. september heldur Guðjón Friðriksson sagnfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Guðmundur Hannesson og skipulag Reykjavíkur". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Upp úr aldamótum 1900 voru skipulagsmál Reykjavíkur samtvinnuð baráttu um bætt heilsufar bæjarbúa. Það er því ekki [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 2. sep 2002

Hvað er borg? - Ingibjörg Sólrún á hádegisfundi

Nú er að hefjast ný hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands í Norræna húsinu. Yfirskrift fundanna verður spurningin "Hvað er borg?" og eru þeir haldnir í samstarfi við Borgarfræðasetur. Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ríður á vaðið miðvikudaginn 4. september með fyrirlestri sem hún nefnir "Höfuðborgin ‹ samviska þjóðarinnar". Aðrir fyrirlestrar munu fara fram í hádeginu á [...]

Lesa áfram »

sunnudagur, 20. jan 2002

Þjóðríkið í fortíð og framtíð

Fundur í ReykjavíkurAkademíunni um bókina "Íslenska þjóðríkið - uppruni og endimörk" eftir Guðmund Hálfdanarson sagnfræðing. STAÐUR: ReykjavíkurAkademían, JL-húsinu við Hringbraut 121, 4. hæð. TÍMI: Fimmtudagur 31. janúar kl. 20:30 - 22:30. FRUMMÆLENDUR: Páll Björnsson sagnfræðingur, Róbert H. Haraldsson heimspekingur og Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur. SKIPULEGGJENDUR: Sagnfræðingafélag Íslands, ReykjavíkurAkademían og Hið íslenska bókmenntafélag. Hver frummælandi fær 15 mínútur en síðan mun Guðmundur [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 3. jan 2002

Bókafundur

Hinn árvissi Bókafundur Sagnfræðingafélagsins fer fram í húsi Sögufélags fimmtudaginn 17. janúar og hefst kl. 20:30. Í þetta sinn verða þrjár bækur teknar fyrir: Erla Hulda Halldórsdóttir fjallar um bókina "Björg" eftir Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, Már Jónsson ræðir um bókina "Landsins forbetran" eftir Hrefnu Róbertsdóttur, og Gunnar Karlsson tekur til umfjöllunar bókina "Uppgjör við umheiminn" eftir Val [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 12. nóv 2001

Jólarannsóknaræfing

Hin sígilda jólarannsóknaræfing Félags íslenskra fræða og Sagnfræðingafélagsins verður að þessu sinni haldin í Versölum í Iðnaðarmannahúsinu á Hallveigarstíg 1, laugardagskvöldið 24. nóvember. Sérlegur heiðursgestur og ræðumaður kvöldsins er listaskáldið Einar Már Guðmundsson. Dagskráin hefst kl. 19:30. Boðið verður upp girnilegt steikarhlaðborð og dýrindis eftirrétti. Að málsverði loknum, fyrirlestri Einars Más og umræðum, verður stiginn dans [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 18. okt 2001

(Um)heimur Miðausturlanda

Kvöldfundur í ReykjavíkurAkademíu 24. okt. Magnús Þorkell Bernharðsson, lektor í miðausturlandafræðum við Hofstra-háskólann í New York, verður gestur á rabbfundi Sagnfræðingafélags Íslands miðvikudaginn 24. október. Fundurinn er haldinn í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og fer fram í aðalfundarsal hennar á fjórðu hæð í JL-húsinu, Hringbraut 121. Fundurinn hefst klukkan 20:30. Gestur okkar mun fyrst fara nokkrum orðum um [...]

Lesa áfram »

föstudagur, 5. okt 2001

Heimsókn í Kvikmyndasafn Íslands

Laugardaginn 13. október býður Kvikmyndasafn Íslands í Hafnarfirði félagsmönnum í Sagnfræðingafélaginu og Félagi sögukennara í heimsókn. Ykkur er velkomið að taka með ykkur gesti. Heimsóknin hefst ekki fyrr kl. 16:30 til að fólk missi ekki af fyrirlestri Ole Feldbæks (KONGENS KØBENHAVN. HANDELENS HOVEDSTAD 1720-1814) sem hefst kl. 14:00 í Odda, stofu 101. Gert er ráð [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 1. sep 2001

Aðalfundur Sagnfræðingafélagsins 2001

Sagnfræðingafélagið heldur aðalfund sinn laugardaginn 8. september í hátíðarsal Menntaskólans í Reykjavík og hefst hann kl. 17:00. Við upphaf fundarins mun Heimir Þorleifsson, sem sagnfræðinga best þekkir sögu skólans, ganga með okkur um hið sögufræga hús. Eins og allir vita eru nú liðin 150 ár frá Þjóðfundinum góðkunna og því þótti við hæfi að halda [...]

Lesa áfram »

fimmtudagur, 19. apr 2001

Fundur um nýtt námsefni í sögu

Félag sögukennara og Sagnfræðingafélag Íslands standa fyrir sameiginlegum fræðslu- og umræðufundi um nýtt námsefni í sögu fyrir framhaldsskóla laugardaginn 28. apríl. Fundurinn fer fram í húsi Sögufélags í Fischersundi og hefst kl. 13:30. Kaffiveitingar verða í boði félaganna. Dagskráin verður sem hér segir: Jakob F. Ásgeirsson frá Nýja bókafélagsins (NB) ræðir um kennsluefni forlagsins [...]

Lesa áfram »

laugardagur, 3. mar 2001

Fundur um útgáfumál sagnfræðinnar

Fimmtudaginn 15. mars stendur Sagnfræðingafélagið fyrir spjallfundi um útgáfumál greinarinnar í húsi Sögufélags í Fischersundi. Fundurinn hefst kl. 20:30. Tilgangur fundarins er að fá sem flesta sagnfræðinga til að velta fyrir sér stöðu útgáfumála greinarinnar í nútíð og framtíð. Hvernig gengur að gefa út hefðbundnar bækur og tímarit? Má búast við því að vöxtur hlaupi í [...]

Lesa áfram »

mánudagur, 12. feb 2001

"Saga og saga"

Fimmtudaginn 22. febrúar heldur Einar Már Guðmundsson erindi á kvöldfundi Sagnfræðingafélagsins sem hann nefnir "Saga og saga". Fundurinn fer fram í húsi Sögufélags við Fischersund og hefst kl. 20:30. Í erindi sínu mun hann velta fyrir sér muninum á "sagnfræði" og "skáldskap", m.a. með vísan til nýjustu verka sinna, bókanna "Fótspor á himnum" og "Draumar á [...]

Lesa áfram »

Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Írisi Ellenberger, formann Sagnfræðingafélagsins, í síma 861-4832 eða í gegnum tölvupóstfangið irisel@hi.is

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 861-4832 - Tölvupóstur: irisel@hi.is