Síðastliðinn þriðjudag, 24. janúar, hélt Sigrún Sigurðardóttir erindi sitt "Innrömmun: minningar, ljósmyndir, saga" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað eru minningar? Þeir sem ekki komust að geta nú hlýtt á erindið hér.
Lesa áfram »Í gær, þriðjudaginn 10. janúar, hóf Þorsetinn Helgason fyrirlestraröð vormisseris Hvað eru minningar? með erindi sínu "Sameiginlegar minningar og sagnfræði: systur eða keppinautar?" Áhugasamir geta nú hlýtt á fundinn með því að smella hér.
Lesa áfram »Fyrr í dag hélt Súsanna Margrét Gestsdóttir lokaerindið í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er (mis)notkun sögunnar? Mældist erindið, "Minniháttar misnotkun?" vel fyrir hjá viðstöddum en nú geta allir nálgast upptöku af fundinum hér. Því miður gaf upptökutækið upp öndina rétt áður en umræðum lauk, en meginhluti fundarins er á upptökunni.
Lesa áfram »Síðastliðið miðvikudagskvöld héldu Sagnfræðingafélag Íslands og ReykjavíkurAkademían kvöldfundinn Vinstri róttækni: Hugsjónabarátta eða landráð? Þar héldu Skafti Ingimarsson, Guðni Th. Jóhannesson, Jón Ólafsson og Ragnheiður Kristjánsdóttir framsögu og má nú hlýða á þær auk umræðna sem spunnust að þeim loknum.
Lesa áfram »Síðastliðinn þriðjudag, 22.11, flutti Gunnar Karlsson erindi sitt "Hlutleysi í sagnfræði" í hádegisfyrirlestrarröðinni Hvað er (mis)notkun sögunnar? Fundurinn var vel sóttur og má nálgast upptöku af flutningnum hér.
Lesa áfram »Í gær hélt Hannes Hólmsteinn Gissurarson erindi í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er (mis)notkun sögunnar? Því miður náðist erindið ekki á upptöku en þess í stað er nú hægt að nálgast glærur Hannesar með því að smella hér.
Lesa áfram »Síðastliðinn laugardag, 1. október, hélt félagið upp á 40 ára afmæli sitt með málþingi og almennum afmælisfögnuði. Málþingið var upphaf fyrirlestrarraðarinnar Hvað er (mis)notkun sögunnar? sem mun svo halda áfram í nóvember. Fyrirlesarar voru þau Íris Ellenberger, Guðni Th. Jóhannesson, Lára Magnúsardóttir og Guðmundur Hálfdanarson. Nú má nálgast erindi fjórmenninganna hér á netinu. Hvert erindi [...]
Lesa áfram »Fyrr í dag, 19. apríl, hélt Hafdís Erla Hafsteinsdóttir síðasta erindið í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Fyrirlestur Hafdís heitir "Forystulið þjóðarinnar? Kvennaíþróttir, karlmennska og þjóðerni" og geta þeir sem misstu af erindi hennar hlustað á það hér.
Lesa áfram »Síðastliðinn þriðjudag, 5. apríl, héldu Sigríður Matthíasdóttir, Þorgerður Einarsdóttir og Guðný Gústafsdóttir erindi sitt "Frá mæðrahyggju til frjálshyggju. Hugmyndir um opinbera þátttöku kvenna 1900-2010" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Þeir sem misstu af erindi Sigríðar, Þorgerðar og Guðnýjar geta hlustað á það hér.
Lesa áfram »Síðastliðinn þriðjudag, 29. mars, var aðalfundur félagsins haldinn í sal Þjóðskjalasafns Íslands. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum hélt Lára Magnúsardóttir fyrirlestur sem nefnist "Sifjafræði rannsóknarskýrslu og afsökunarbeiðni. Genin úr bannfæringu." Vel var mætt á erindið en nú má hlusta á fyrirlesturinn hér.
Lesa áfram »Í gær, 22. mars, hélt Svanur Pétursson erindi sitt "Hver er munurinn á kynjasögu og kynferðissögu?" hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Þeir sem misstu af erindi Svans geta hlustað á það hér.
Lesa áfram »Í gær, 8. mars, hélt Páll Björnsson erindi sitt "Fjallkarl Íslands: Jón Sigurðsson forseti" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Fyrirlesturinn var afar vel sóttur en nú geta fleiri heyrt í Páli því erindið er nú aðgengilegt hér á netinu. Kynningu erindis vantar fram á upptökuna en vonandi kemur það ekki að sök.
Lesa áfram »Í gær, 22. febrúar, hélt Rósa Magnúsdóttir erindi sitt "Þóra og Kristinn: ævisaga - hjónasaga - kynslóðasaga - kynjasaga?" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Fyrirlesturinn var afar vel sóttur en nú geta fleiri heyrt í Rósu því erindið er nú aðgengilegt hér á netinu.
Lesa áfram »Síðastliðinn þriðjudag, 8. febrúar, hélt Davíð Ólafsson erindi sitt "konur, handritamenning og bókmenntasaga hversdagsins" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Fyrirlesturinn var vel sóttur en nú geta fleiri heyrt í Davíð því erindið er nú aðgengilegt hér á netinu.
Lesa áfram »Erlingur Björnsson hélt erindi sitt "Um kvenfólk og brennivín" í gær, þriðjudaginn 25. janúar, í fyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga? Fundurinn var vel sóttur en fleiri geta nú hlustað því upptöku af erindinu má hlýða á hér.
Lesa áfram »Síðastliðinn þriðjudag, 23. nóvember, hélt Már Jónsson fyrirlesturinn "Afkynjun erfða um miðja 19. öld: forsendur og framkvæmd" og lauk þar með röðinni Hvað eru lög?. Þeir sem ekki voru á staðnum geta núna hlustað á erindið hér.
Lesa áfram »Í dag hélt Ágúst Þór Árnason fyrirlesturinn "Stjórnarskrá eða stefnuskrá" í fyrirlestraröðinni "Hvað eru lög?". Þeir sem ekki voru á staðnum geta núna hlustað á erindið í heild sinni hér.
Lesa áfram »Síðastliðinn þriðjudag, 21. september, hélt Ragna Árnadóttir fyrirlesturinn "Lög eru nauðsynleg í réttarríki" og opnaði þar með röðina "Hvað eru lög?". Þeir sem ekki voru á staðnum geta núna hlustað á erindið í heild sinni hér.
Lesa áfram »Síðastliðinn þriðjudag, 13. apríl, hélt Guðni Th. Jóhannesson fyrirlestur um Gunnar Thoroddsen í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands. Fundurinn var vel sóttur og almenn ánægja með erindið. Hlusta má á mál Guðna hér.
Lesa áfram »Eggert Þór Bernharðsson hélt fyrirlestur í dag í hádegisfyrirlestrarröð Sagnfræðingafélagsins Hvað er dómur sögunnar? um braggabúa. Ásókn var með mesta móti og þurfti að vísa áhugasömum gestum frá sökum plássleysis! Upptöku erindisins er hægt að nálgast hér.
Lesa áfram »Katla Kjartansdóttir þjóðfræðingur flutti í gær, þriðjudaginn 16. mars 2010, erindi sitt "Vandræðalegir víkingar. Ímynd - arfur - tilfinningar" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er dómur sögunnar? Eins og svo oft áður var húsfyllir og vel það. Nú geta áhugasamir hlýtt á erindið í heild sinni hér.
Lesa áfram »Í gær flutti Hrefna Róbertsdóttir fyrirlestur sinn "Gamall eða nýr tími á 18. öld?" í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er dómur sögunnar? Þeir sem ekki komust í Þjóðminjasafnið til að hlusta á fróðlegt erindið geta hlustað á upptöku þess hér.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Jón Yngvi Jóhannsson erindi um Gunnar Gunnarsson og dóm sögunnar. Fyrirlesturinn var hluti af röðinni Hvað er dómur sögunnar? Nú er hægt að hlusta á herlegheitin en vert er að geta þess að upptakan er óvenju lágvær að þessu sinni. Hljóðskráin er hér.
Lesa áfram »Í gær hélt Úlfur Bragason erindi um Gissur Þorvaldsson og mat á bæði honum og samtímamönnum hans. Fyrirlesturinn var afar vel sóttur og vel talað um hann. Þetta var annar hádegisfyrirlesturinn í röðinni Hvað er dómur sögunnar? og er nú hægt að hlusta á erindið í heild sinni hér.
Lesa áfram »Sigurður Gylfi Magnússon hélt í dag opnunarerindi hádegisfyrirlestraraðarinnar Hvað er dómur sögunnar? Vel var mætt í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins en nú geta þeir sem ekki komust fyrir eða vilja hlusta aftur gert það. Erindi Sigurðar, Dómur sögunnar er ævinlega rangur!, er aðgengilegt hér.
Lesa áfram »Guðmundur Hálfdanarson prófessor hélt áhugaverðan fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands síðastliðinn þriðjudag, Er íslenskt fullveldi í kreppu? Erindið hlaut verðskuldaða athygli, fjöldi gesta mætti og fjölmiðlar gerðu fundinum skil. Lauk þarna hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kreppa? en eftir áramót tekur við röðin Hver erdómur sögunnar? Fyrir þá sem ekki gátu mætt eða vilja hlusta aftur á erindi [...]
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Guðmundur Jónsson prófessor erindi sitt Velferðarríkið og efnahagskreppur á Íslandi í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er kreppa? Líkt og venja er var viðburðurinn tekinn upp og er nú gerður aðgengilegur þeim sem misstu af eða vilja hlýða aftur á þetta áhugaverða erindi. Þó skal vekja athygli á því að á upptökuna [...]
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Sigrún Davíðsdóttir erindi sitt "Kreppan og kunningjaþjóðfélagið" í hádegisfyrirlestrarröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er kreppa? Óhætt er að fullyrða að erindið hafi hlotið verðskuldaða athygli því um 170 manns hlýddu á Sigrúnu en það er met á þessum fundarstað. En þó margir hafi mætt á staðinn eru fjölmargir áhugasamir sem ekki komust [...]
Lesa áfram »Fyrr í dag fluttu Katrín Jakobsdóttir, Viðar Hreinsson og Íris Ellenberger stutt erindi og sátu fyrir svörum á málfundi undir yfirskriftinni "Hugvísindi á krepputímum. Staða, hlutverk og sóknarfæri". Málfundurinn var fyrsti liður í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Ísland Hvað er kreppa? Erindin eru nú aðgengileg hér í hljóðupptöku.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Anna Agnarsdóttir hádegisfyrirlesturinn „Stjórnarbylting á Íslandi 1809: Stóð Íslendingum á sama?“ Fyrirlesturinn er hluti hádegisfyrirlestrarraðar Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt, smellið hér til að hlusta.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Brynhildur Sveinsdóttir fyrirlestur Unnar Maríu Bergsveinsdóttur Loksins ertu sexí! Íslenskur menningararfur í meðförum pönkara. Fyrirlesturinn er hluti hádegisfyrirlestrarraðar Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt, smellið hér til að hlusta.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Sigurður Líndal hádegisfyrirlesturinn Andófið gegn Atlantshafsbandalaginu 30. marz. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta. Vegna tækniörðugleika er hljóðið á upptökunni frekar lágt og er mælt með því að heyrartól séu notuð við hlustun.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður hádegisfyrirlesturinn Þýðing andófs fyrir þróun réttarins. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Jón Ólafsson heimspekingur hádegisfyrirlesturinn Þversögn andófsins. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Lára Magnúsardóttir hádegisfyrirlesturinn Ótti við andóf veldur andófi og ótta. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.
Lesa áfram »Síðastliðinn þriðjudag flutti Árni Daníel Júlíusson hádegisfyrirlesturinn Andóf í akademíunni. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.
Lesa áfram »Fyrirlestur Kjartans Ólafssonar Hetjudáð eða hermdarverk? er nú aðgengilegur hér á vef Sagnfræðingafélagsins. Smellið hér til að hlusta á erindið í heild sinni. Kjartan hélt erindið aðeins einni klukkustund fyrir búsáhaldabyltingu þann örlagaríka dag 20. janúar 2009. Að erindinu loknu spurði Óttar M. Norðfjörð hvað Kjartan teldi að þyrfti að gerast til að mótmæli hlytu [...]
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Viggó Ásgeirsson hádegisfyrirlesturinn Óttinn við sjúkdóma: Spænska veikin og fuglaflensan. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Guðmundur Jónsson hádegisfyrirlesturinn Hallærasamt land en þó ekki óbyggjandi. Um efnahagskreppur og óttann við þær. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Guðni Th. Jóhannesson hádegisfyrirlesturinn „Með því að óttast má ...“ Ástæður símhlerana í kalda stríðinu. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast? Erindið er nú aðgengilegt hér á vef Sagnfræðingafélagsins, smellið hér til að hlusta. Um fyrirlestur Guðna var fjallað á mbl.is strax í kjölfar flutnings. Sjá [...]
Lesa áfram »Erindi Björns Bjarnasonar, Kalda stríðið - dómur sögunnar, er nú aðgengilegt á .mp3 formi hér á síðu Sagnfræðingafélagsins. Erindið flutti Björn í Þjóðminjasafni Íslands þriðjudaginn 16. september 2008. Smellið hér til að hlýða á erindið. Einnig má nálgast texta erindisins á heimasíðu Björns.
Lesa áfram »Erindi Kristins Schram, Að endurheimta augnablikið: Þjóðfræði, kvikmyndatækni og írónía, er nú aðgengilegt á .mp3 formi hér á síðu Sagnfræðingafélagsins. Erindið flutti Kristinn í Þjóðminjasafni Íslands þriðjudaginn 6. mars 2008. Smellið hér til að hlýða á erindið. Athugið að vegna mannlegra mistaka vantar upphafssetningar Kristins á upptökuna.
Lesa áfram »Erindi Maríu Karenar Sigurðardóttur forvarðar og safnstjóra Ljósmyndasafns ReykjavíkurEr réttlætanlegt að henda ljósmynd? er nú aðgengilegt hér á síðu Sagnfræðingafélags Íslands. Erindið flutti hún í Þjóðminjasafni Íslands þriðjudaginn 22. apríl. Smellið hér til að hlýða á fyrirlestur Maríu.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Anna Lísa Rúnarsdóttir hádegisfyrirlesturinn Minjar í torfi: hugmyndafræði varðveislu Núpsstaðar. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla? Smellið hér til að hlýða á fyrirlestur Önnu.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir,doktorsnemi í sagnfræði við háskólann í Gautaborg og gestafræðimaður á Þjóðminjasafni Íslands, fyrirlesturinn Ólíkar hugmyndir um varðveislu fornminja á fyrri hluta nítjándu aldar. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla? Smellið hér til að hlýða á fyrirlestur Önnu.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Örn Hrafnkelsson, sagnfræðingur og forstöðumaður Handritadeildar Landsbókasafns Íslands, hádegisfyrirlesturinn Hver gætir hagsmuna minna? Um notkun og aðgengi að einkaskjölum í Landsbókasafni. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla? Smellið hér til að hlýða á fyrirlestur Arnar.
Lesa áfram »Fyrr í dag flutti Kristín Huld Sigurðardóttir erindið Það er engum för til fjár að brjóta hauga á hádegisfundi Sagnfræðingafélags Íslands. Þeir sem misstu af þessum skemmtilega fundi geta smellt hér til að hlýða á Kristínu á mp3 formi.
Lesa áfram »