Núna á hádegi þriðjudagsins 12. september hefst hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands á ný. Þema raðarinnar að þessu sinni er: „Hvað er sagnfræði? Rannsóknir og miðlun.“ Þórarinn Eldjárn rithöfundur hefur leikinn með erindi sem nefnist Ljúgverðugleiki. Íslendingar hafa tekið sögulegum skáldsögum Þórarins vel og má þar nefna Brotahöfuð og Baróninn. Þær bækur vekja ýmsar skemmtilegar spurningar um [...]
Lesa áfram »Nýja bókin, Íslenskir sagnfræðingar. Fyrra bindi. Sagnfræðingatal og saga Sagnfræðingafélags Íslands. Ritstjórar Ívar Gissurarson, Páll Björnsson, Sigurður Gylfi Magnússon og Steingrímur Steinþórsson, er komin út. Hún kom úr prenti síðdegis á fimmtudag og eru allir sagnfræðingar hvattir til að tryggja sér stéttartalið á frábæru verði hjá útgefanda sem allra fyrst. Pantið núna í gegnum eftirfarandi [...]
Lesa áfram »Fréttabréf Sagnfræðingafélagsins er komið út og var í dag sent af stað til félaga. Athugið að nálgast má mörg eldri tölublöð fréttabréfsins hér
Lesa áfram »Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands verður haldinn í húsi Sögufélags við Fischersund í Reykjavík laugardaginn 18. mars. Kl. 16:00, áður en venjuleg aðalfundarstörf hefjast, flytur Sigrún Sigurðardóttir sagnfræðingur og menningarfræðingur fyrirlestur sem nefnist „Engill sögunnar. Um díalektískar myndir, óvæntar minningar og fortíðina í sjálfri mér.“ Í fyrirlestrinum verður fjallað um sam(ráðs)fund fortíðar og nútíðar út frá kenningum [...]
Lesa áfram »Gaman er að koma í Keflavík. Landsbyggðarráðstefna Félags þjóðfræðinga á Íslandi, Sagnfræðingafélags Íslands og heimamanna, Duus-húsum í Reykjanesbæ, laugardaginn 4. mars 2006. Dagskrá er sem hér hljóðar: 08:00 Rúta frá Nýja Garði 09:00-10:30 Kynnis- og fræðsluferð um Keflavíkurflugvöll Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, rekur þær breytingar sem orðið hafa á umsvifum þess undanfarin ár 10:30-10:45 Setning [...]
Lesa áfram »Bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags Árlegur bókafundur Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags verður haldinn í húsi Sögufélags við Fischersund miðvikudagskvöldið 1. febrúar, og hefst stundvíslega kl. 20:00. Rætt verður um eftirtalin rit: Bragi Þorgrímur Ólafsson sagnfræðingur fjallar um rit Guðjóns Friðrikssonar, Ég elska þig stormur. Ævisaga Hannesar Hafstein. Dagný Heiðdal listfræðingur fjallar um rit Hrafnhildar Schram, [...]
Lesa áfram »Jólarannsóknaræfing Félags íslenskra fræða, Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðing á Íslandi verður haldin í sal Siglingaklúbbsins Brokeyjar laugardagskvöldið 3. desember næstkomandi. Húsið opnar klukkan 19.00 – borðhald hefst kl. 20.00. Veitingar: Blandað smáréttahlaðborð, gómsætt og girnilegt! Meðal rétta má nefna kjúklinga- og lambakjötsspjót, snittur, tapas, tígrisrækjur og sæta eftirrétti. Drykkjarföng (hvítvín, rauðvín, bjór og gos) [...]
Lesa áfram »Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.
Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík
Einnig má hafa samband við Val Frey Steinarsson, formann Sagnfræðingafélagsins, í síma 866-3131 eða í gegnum tölvupóstfangið valur.steinarsson[hjá]gmail.com
About the Association The Icelandic Association of Historians can be contacted through the Valur Freyr Steinarsson: valur.steinarsson[hjá]gmail.com or via telephone: +354-866-3131.