þriðjudagur, 12. jan 2010

Bókafundur

Hinn árlegi bókafundur Sögufélags og Sagnfræðingafélagsins verður haldinn fimmtudaginn 14. janúar kl. 20 í húsnæði Sögufélags, Fischersundi 3.

Ævisagnaþema verður á fundinum og er dagskráin eftirfarandi:


20.00 Vigdís. Kona verður forseti eftir Pál Valsson. Erla Hulda Halldórsdóttir gagnrýnir.

20:30 Mynd af Ragnari í Smára eftir Jón Karl Helgason. Sigrún Sigurðardóttir gagnrýnir.

21: 00 Hlé

21:15  Snorri. Ævisaga Snorra Sturlusonar 1179-1241 eftir Óskar Guðmundsson. Helgi Þorláksson gagnrýnir.

21:45 ÞÞ í forheimskunarlandi eftir Pétur Gunnarsson. Soffía Auður Birgisdóttir gagnrýnir.


Hvert erindi verður u.þ.b. 15 mínútur að lengd og er gert ráð fyrir ca. 15 mínútna umræðum að loknu hverju þeirra.

Léttar veitingar verða til sölu á vægu verði


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Írisi Ellenberger, formann Sagnfræðingafélagsins, í síma 861-4832 eða í gegnum tölvupóstfangið irisel@hi.is

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 861-4832 - Tölvupóstur: irisel@hi.is