Greinar frá 3. feb 2009

þriðjudagur, 3. feb 2009

Árni Daníel Júlíusson: Andóf í akademíunni

Þriðjudaginn 3. febrúar flytur Árni Daníel Júlíusson hádegisfyrirlesturinn Andóf í akademíunni. Athugið að dagskrá vormisseris hefur verið breytt. Lára Magnúsardóttir sem átti að flytja fyrirlestur 3. febrúar flytur erindi sitt 17. febrúar.

Í lýsingu Árna á erindinu segir:
Meðal þess sem rætt hefur verið eftir hrun efnahagslífsins er ábyrgð akademíunnar. Spurt er af hverju menntamenn hafi ekki séð fyrir hvað væri að gerast og varað við því, þannig að tekið væri eftir. Í erindinu verða nokkrar mögulegar ástæður þess ræddar. Í fyrsta lagi var hugmyndafræði frjálshyggjunnar andsnúin því að rætt væri um samfélag og stórar heildir. Öll áhersla var á einstaklinginn og frelsi hans. Þetta hafði veruleg áhrif í akademíunni, því þrengt var að hug- og félagsvísindum og lítill áhugi af hálfu stjórnvalda á því að afla upplýsinga til að fá yfirsýn. Þetta sést best á því að Þjóðhagsstofnun var beinlínis lögð niður.

Lesa áfram »

Hlaðvarp: Hetjudáð eða hermdarverk?

Fyrirlestur Kjartans Ólafssonar Hetjudáð eða hermdarverk? er nú aðgengilegur hér á vef Sagnfræðingafélagsins. Smellið hér til að hlusta á erindið í heild sinni. Kjartan hélt erindið aðeins einni klukkustund fyrir búsáhaldabyltingu þann örlagaríka dag 20. janúar 2009. Að erindinu loknu spurði Óttar M. Norðfjörð hvað Kjartan teldi að þyrfti að gerast til að mótmæli hlytu [...]

Lesa áfram »

Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is