mánudagur, 29. sep 2008

Guðni Th. Jóhannesson: „Með því að óttast má ...“ Ástæður símhlerana í kalda stríðinu

Þriðjudaginn 30 september flytur Guðni Th. Jóhannesson hádegisfyrirlesturinn „Með því að óttast má ...“ Ástæður símhlerana í kalda stríðinu. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast?

Í erindinu verða rök yfirvalda fyrir hlerunum hverju sinni vegin og metin. Rakið verður hvað réð því að ákveðið var að hlera hjá sumum sósíalistum og/eða andstæðingum Bandaríkjahers hér á landi, en ekki öðrum. Sýnt verður fram á þann greinarmun sem gera verður á hinum sérstöku ástæðum sem réðu því í hvert skipti að yfirvöld ákváðu að grípa til þessara aðgerða, og hins almenna ótta þeirra við sósíalista og stefnu þeirra. Minnst verður á þann skort á heimildum sem torveldar allar rannsóknir á sögu símhlerana í kalda stríðinu og að lokum verður rætt um „dóm sögunnar“ í þessu máli.

Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is