mánudagur, 5. maí 2008

Að endurheimta augnablikið: Þjóðfræði, kvikmyndatækni og írónía

Þriðjudaginn 6. maí flytur Kristinn Schram hádegisfyrirlesturinn Að endurheimta augnablikið: Þjóðfræði, kvikmyndatækni og írónía. Kristinn er forstöðumaður Þjóðfræðistofu, stundakennari við H.Í og doktorsnemi við Edinborgarháskóla.

Er kvikmyndun sjálfsagt tæki í vettvangsrannsóknum? Verður menning varðveitt í hreyfimynd og hljóði og síðan endurupplifuð? Hvers eðlis eru þjóðfræðilegar kvikmyndir? Hafa kvikmyndir eðli? Í fyrirlestrinum verður fjallað um kosti og galla kvikmyndatækni við þjóðfræðilegar rannsóknir og tekin dæmi af rannsóknum Kristins frá bæði Íslandi og Skotlandi. Með hliðsjón af vettvangs- og varðveisluaðferðum fyrr og nú skoðar hann fyrirbæri eins og sjálfsmynd, 'performans', menningarf og íróníu og hvernig megi nálgast þau á tímum stafrænnar tækni og usla í þjóðernisumræðu.

Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is