föstudagur, 11. jan 2008

Hádegisfundir hefjast á nýju ári!

Fyrsti hádegisfundur Sagnfræðingafélags Íslands á nýju ári fer fram þriðjudaginn 15. janúar næstkomandi. Hrafn Sveinbjarnarson sagnfræðingur flytur hádegisfyrirlesturinn Syndaflóðið kemur eftir vorn dag - um varðveislu íslenskra skjalasafna. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla?

Syndaflóðið kemur eftir vorn dag - um varðveislu íslenskra skjalasafna. Útdráttur úr fyrirlestri:

Skjalasöfn endurspegla það þjóðskipulag og stjórnkerfi sem ríkir á hverjum tíma. Rétt meðferð og örugg varðveisla skjala í stjórnsýslu og hjá skjalavörslustofnunum í borgaralegu þjóðfélagi er grundvöllur réttarríkis, borgaralegra réttinda og forsenda öflugra sagnfræðirannsókna. Án skipulegrar og öflugrar opinberrar skjalavörslu eru upplýsingalög og stjórnsýslulög til lítils. Varðveisla íslenskra skjalasafna er háð því að faglega sé að henni staðið. Öflugt Þjóðskjalasafn sem hefur á að skipa skjalavörðum menntuðum í sagnfræði með formlega viðbótarmenntun í skjalfræðum er frumforsenda þess. Umfjöllunarefni fyrirlestrarins verður varsla opinberra skjalasafna og einkaskjalasafna á Íslandi og nokkur vandamál hennar t.d. óraunhæfar hugmyndir um tölvutækni og skjalasöfn, eyðilegging skjalasafna vegna skilningsleysis á heild þeirra og innra skipulagi og gáleysisleg og ólögleg grisjun skjala.

Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is