Syndaflóðið kemur eftir vorn dag
Hrafn Sveinbjarnarson sagnfræðingur flytur hádegisfyrirlesturinn Syndaflóðið kemur eftir vorn dag - um varðveislu íslenskra skjalasafna. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla?
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.