Hálendi hugans - Landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags Þjóðfræðinga á Íslandi
9. landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðinga á Íslandi verður haldin á hinu nýja Heklusetri á Leirubakka í Landsveit í samvinnu við heimamenn helgina 1.-3. júní 2007.
Nánari dagskrá og upplýsingar er að finna hér að neðan:
Ráðstefnugestir munu gista og funda á hinu fornfræga höfðingjasetri að Leirubakka sem var eitt sinn í eigu ekki ófrægari manna en rithöfundar Íslands Snorra Sturlusonar og síðar Björns Þorleifssonar hirðstjóra. Eftir stranga fræðimennsku er ekki verra að svamla í glæsilegri Snorralaug í kvöldsólinni með ægifögru útsýni á Heklu og ræða niðurstöður dagsins við aðra ráðstefnugesti. Þá verður boðið upp á fræðslu- og skemmtiferð um Hekluslóðir. Hér gefst því einstakt tækifæri til að fræðast og treysta vinabönd í góðra vina hópi í faðmi náttúrunnar.
Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Hálendi hugans“ og verður umfjöllunarefnið, eins og titillinn gefur til kynna, hálendi Íslands, sagan, þjóðsögur, nýting og samspil náttúruaflanna og mannsins á þessu svæði.
Dagskráin verður eftirfarandi:
Föstudagurinn 1. júní
- 15:00 Brottför með rútu frá Nýja Garði
- 17:30-18:00 Skrásetning og fólk kemur sér fyrir
- 18:00-19.30 Léttur kvöldverður
- 20:00-20:30 Setningarfyrirlestur: Guðmundur Jónsson sagnfræðingur: Ástríður Guðna Jónssonar. Hugleiðing um manninn og verk hans.
- 20:30-23:00 Móttaka vegna afhjúpunar minnisvarða um Guðna Jónsson
Laugardagurinn 2. júní
- 08:00-09:00 Morgunverður
- 09:00-10:30 Handan hins þekkta:
- Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur: Óttinn við hið óþekkta.
- Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir íslenskufræðingur: Landmannaafréttur - útmörk hins mannlega samfélags. Sagnir af Jóni Brandssyni, fjallkóngi og bónda í Næfurholti.
- Margaret Cormack miðaldafræðingur: Á sveimi yfir Heklu: hugmyndir miðaldamanna um fugla og sálir.
- 10:30-11:00 Kaffi
- 11:00-12:30 Landamæri og landamörk:
- Helga Ögmundardóttir mannfræðingur: Afrétturinn sem hluti af hinu sameiginlega sjálfi. Gnúpverjar og vinin sunnan Hofsjökuls.
- Einar G. Pétursson handritafræðingur: Eignir kirkna á fjalllendi og málskilningur og heimildanotkun í þjóðlendumálum.
- Guðrún Ása Grímsdóttir sagnfræðingur: Hverjir nýttu fyrrum byggðir og auðnir Íslands frá fjöru til fjalls – og hvernig?
- 12:30-14:00 Hádegisverður og hlé
- 14:00-15:30 Í huga sérhvers manns:
- Marion Lerner menningarfræðingur: Ferðasögur sem minnismerki handa þjóðinni.
- Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur: Hálendið í hugum útlendra ferðamanna.
- Anna Dóra Sæþórsdóttir ferðamálafræðingur: Nýting hálendisins til ferðamennsku.
- 15:30-18:00 Fræðsluferð um Hekluslóðir (með kaffi). Leiðsögumaður: Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, með aðstoð Þórs Jakobssonar veðurfræðings.
- 20:00-22:00 Hátíðarkvöldverður
- Björk Þorleifsdóttir sagnfræðingur: „Troddu þér nú inn í tjaldið hjá mér“. Skemmtanalíf á hálendinu.
- Bjarni Harðarson blaðamaður: Hátíðarræða.
Sunnudagur 3. júní
- 10:00-11:30 Könnun hálendisins:
- Ingibjörg Jónsdóttir landfræðingur: Óbyggðaleiðangrar Þorvalds Thoroddsen.
- Ingólfur Á. Jóhannesson sagnfræðingur: Ísland er ekki líkt tunglinu – hugleiðingar um þjálfun tunglfara á Íslandi.
- Unnur Birna Karlsdóttir:Landnám iðnvæðingar - öræfi og virkjanir. Um viðhorf til hálendisins í umræðu um virkjanir á 20. öld.
- 11:30-13:30 Hádegisverður og hlé
- 13:30-17:00 Opin málstofa um hálendið:
- Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur: Hálendi hugans.
- Þorsteinn Hilmarsson heimspekingur: Er firring í firnindum?
- 15:00-15:30 Kaffi
- 13:30-17:00 Opin málstofa um hálendið:
- Þorvarður Árnason umhverfisfræðingur: Fagurfræði hálendisins.
- Júlíus Sólnes verkfræðingur: Hálendið-sjálfstjórnarsvæði í eigu almennings.
- 18:00-20:30 Rútuferð til Reykjavíkur
Undirbúningsnefndina skipa: Björk Þorleifsdóttir, Guðni Th. Jóhannesson og Íris Ellenberger fyrir hönd Sagnfræðingafélagsins, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir fyrir Félag þjóðfræðinga, auk ábúenda á Leirubakka.
Styrktaraðilar: Menntamálaráðuneyti, Umhverfisráðuneyti, Fjármálaráðuneyti, N1, Rangárþing ytra, Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Bændasamtök Íslands og Heklusetrið, Leirubakka.