laugardagur, 27. nóv 2004

Jólarannsóknaræfing 11. desember

Árleg jólarannsóknaræfing Félags íslenskra fræða, Sagnfræðingafélags Íslands og Reykjavíkurakademíunnar verður haldin í Iðnó næsta laugardag. Húsið opnar kl. 19. Í boði er þriggja rétta glæsilegur jólakvöldverður.

Veislustjóri verður Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur sem m.a. mun veita heppnum gestum kvöldsins bókagjöf frá Bjarti og JPV útgáfum. Ræðumaður kvöldsins verður Guðni Elísson og að loknu borðhaldi tekur tónlist og dans við. Verð er 5500 kr. en kl. 23:30 verður húsið opnað fyrir þeim sem vilja koma eftir matinn og greiða 500 kr. fyrir að skemmta sér fram eftir nóttu.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is