sunnudagur, 5. jan 2003

Borgin: rými - flæði - byggð

Þriðjudaginn 7. janúar heldur Sigrún Birgisdóttir arkitekt fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Borgin: rými - flæði - byggð". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipulagsmál.

Fyrirlesturinn mun fjalla um einkenni hinnar vestrænu borgar út frá byggðamynstri miðkjarna fyrri tíma sem breyst hefur í dreifðar jaðarbyggðir og borgarflæmi nútímans. Fjallað verður um bæði fyrri og seinni tíma hugmyndir er varða formgerð hinnar útópísku borgar og hina margbreytilegu þætti og áhrifavalda á nútíma kjörlendi borgarbúa. Fyrirlesturinn er hluti af fundaröðinni "Hvað er borg?" sem staðið hefur yfir frá því í september 2002. Samtals verða fjórtán fyrirlestrar fluttir um þetta efni en röðinni lýkur í byrjun apríl.

Sigrún Birgisdóttir er lektor í innanhúss- og landslagsarkitektúr við Buckinghamshire Chilterns University College á Bretlandi. Auk þess starfar hún sjálfstætt og í samstarfi við arkitektastofuna Cherie Yeo Architecture and Design. Hún lauk BA (hons) gráðu í arkitektúr frá Oxford Brookes University árið 1993 og diploma gráðu frá Architectural Association (AA dip) í London árið 2000. Hún hefur einnig sinnt kennslu við Central St. Martin´s í London og starfað á arkitektastofunum Pip Horne Architecture and Design, Pierre d´Avoine Architects og David Connor Architects.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is