fimmtudagur, 31. okt 2002

Reykjavík - frá götum til bílastæða

Þriðjudaginn 5. nóvember heldur Ágústa Kristófersdóttir sagn- og listfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Reykjavík - frá götum til bílastæða". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00.

Í fyrirlestrinum verður rætt um nokkra þætti í skipulagssögu Reykjavíkur frá tímabilinu 1930 til 1980 og verða þeir settir í alþjóðlegt samhengi. Fjögur hverfi borgarinnar verða tekin sem dæmi, Norðurmýrin og Breiðholtin þrjú, þ.e. Neðra- og Efra-Breiðholt ásamt Seljahverfi. Rætt verður um þær breytingar sem orðið hafa á skipulagsaðferðum á tímabilinu, en m.a. verður skoðað hvernig bílastæði hafa tekið við hlutverki götunnar í því að móta ásýnd borgarinnar.

Ágústa Kristófersdóttir lauk BA-prófi í sagnfræði frá HÍ árið 1998 og nam listfræði við háskólana í Stokkhólmi og Lundi 1996-1999. Frá árinu 2000 hefur hún starfað á Listasafni Reykjavíkur og m.a. lagt stund á rannsóknir í byggingarlistarsögu. Hún var sýningarstjóri sýningarinnar "Byggt yfir hugsjónir: Breiðholt frá hugmynd að veruleika" í Listasafni Reykjavíkur vorið 2002.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is