föstudagur, 18. okt 2002

Þróun jaðarsvæða Reykjavíkur

Þriðjudaginn 22. október heldur Sigríður Kristjánsdóttir skipulagsfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist "Þróun jaðarsvæða Reykjavíkur". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og menningu.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um formfræði borga (urban morphology), þ.e. rannsóknir á hinu efnislega formi borgarinnar og þeim hvötum sem liggja að baki mótun þess, notkun og þróun. Einkum verður horft til jaðarsvæða íborgum og leitað svara við spurningunni hvað felist í hugtakinu jaðarbelti (fringe belt). Rætt verður um þróunarferil slíkra svæða innan borgarlandslagsins og spurt hvernig og hvers vegna þau verði til. Í erindinu verða tekin dæmi frá Reykjavík og ljósi varpað á jaðarbelti borgarinnar, en ungur aldur hennar gerir það að verkum að auðvelt að rekja hvaðan hugmyndir um borgir og skipulagsmál bárust og hvaða áhrif þær höfðu á byggðina. Ljóst er t.a.m. að framan af gætti mikið evrópskra áhrifa en í seinni tíð hafa bandarísk áhrif orðið meira áberandi.

Sigríður Kristjánsdóttir er með BS-próf í landafræði frá HÍ, meistarapróf í skipulagsfræðum frá University of Washington í Seattle og vinnur nú að doktorsritgerð í skipulagsfræðum við University of Birmingham. Rannsóknir sínar vinnur hún við Borgarfræðasetur HÍ. Hún hefur sinnt ýmsum störfum tengdum kennslu og tölvukortagerð, m.a. verið stundakennari við HÍ.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is