mánudagur, 2. sep 2002

Hvað er borg? - Ingibjörg Sólrún á hádegisfundi

Nú er að hefjast ný hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands í Norræna húsinu. Yfirskrift fundanna verður spurningin "Hvað er borg?" og eru þeir haldnir í samstarfi við Borgarfræðasetur. Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ríður á vaðið miðvikudaginn 4. september með fyrirlestri sem hún nefnir "Höfuðborgin ‹ samviska þjóðarinnar". Aðrir fyrirlestrar munu fara fram í hádeginu á þriðjudögum, eins og verið hefur undanfarin ár.Samtals verða fjórtán erindi flutt um þetta efni. Fyrirlesarar koma úr ýmsum áttum enda er það tilgangur þessara funda að leiða saman fólk með ólík viðhorf og aðferðir. Spurningin hvað sé borg býður vissulega upp á mjög þverfaglega nálgun vegna þess að borgin er svo margt í senn, s.s. safn tæknilegra lausna, félagslegt tengslanet og afsprengi huglægs tíðaranda.

Fundaröðinni mun ljúka í byrjun apríl 2003 með ráðstefnu um framtíð borga.

Fundirnir í Norræna húsinu hefjast kl. 12:05 og lýkur á slaginu kl. 13:00.

Þeir eru öllum opnir og er aðgangur ókeypis.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is