föstudagur, 5. okt 2001

Heimsókn í Kvikmyndasafn Íslands

Laugardaginn 13. október býður Kvikmyndasafn Íslands í Hafnarfirði félagsmönnum í Sagnfræðingafélaginu og Félagi sögukennara í heimsókn. Ykkur er velkomið að taka með ykkur gesti. Heimsóknin hefst ekki fyrr kl. 16:30 til að fólk missi ekki af fyrirlestri Ole Feldbæks (KONGENS KØBENHAVN. HANDELENS HOVEDSTAD 1720-1814) sem hefst kl. 14:00 í Odda, stofu 101. Gert er ráð fyrir að dagskránni í Odda ljúki upp úr kl. 15:30.

Við hefjum leikinn í sjálfu safninu sem er til húsa í gömlu frystihúsi við Vesturgötu 11-13. Vinsamlega athugið að inngangurinn er í portinu hafnarmegin. Þar mun forstöðumaðurinn, Sigurjón Baldur Hafsteinsson, taka á móti okkur og leiða okkur um safnið. Að því búnu göngum við með honum yfir í Bæjarbíó-Cinematek þar sem hann ætlar að sýna okkur stutta kvikmynd sem kom í leitirnar fyrir skömmu. Að því búnu býður safnið upp á laufléttar veitingar. Áætlað er að þetta taki um tvær klukkustundir.

Sjáumst klukkan hálffimm á laugardaginn. Stjórnin.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is