fimmtudagur, 19. apr 2001

Fundur um nýtt námsefni í sögu

Félag sögukennara og Sagnfræðingafélag Íslands standa fyrir sameiginlegum fræðslu- og umræðufundi um nýtt námsefni í sögu fyrir framhaldsskóla laugardaginn 28. apríl. Fundurinn fer fram í húsi Sögufélags í Fischersundi og hefst kl. 13:30. Kaffiveitingar verða í boði félaganna.

Dagskráin verður sem hér segir:

  • Jakob F. Ásgeirsson frá Nýja bókafélagsins (NB) ræðir um kennsluefni forlagsins í sögu fyrir framhaldsskóla.Gunnar Þór Bjarnason, sögukennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, fjallar um samningu bókarinnar Íslands- og mannkynssaga II sem ætluð er til kennslu í sögu 203.
  • Jens Baldursson og Jón Árni Friðjónsson, sögukennarar við Fjölbrautaskóla Vesturlands, og Jón Ingi Sigurbjörnsson og Björn Gísli Erlingsson, sögukennarar við Menntaskólann á Egilsstöðum, ræða um reynslu sína af kennslubókum NB í sögu 103 og 203.
  • Almennar umræður
  • Kaffihlé
  • Heiðrún Geirsdóttir og Sigríður Björg Tómasdóttir segja frá samningu kennslubókar í menningarsögu sem þær eru að skrifa ásamt fleirum fyrir NB.
  • Jón Ingvar Kjaran, sögukennari við Verzlunarskólann, fjallar um Söguvefinn á Strik.is
  • Almennar umræður
  • Gunnar Karlsson, prófessor við HÍ, gerir grein fyrir námsefni sem hann og fleiri eru að semja.
  • Lokaumræður

Fundarslit kl. 16:00.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is