laugardagur, 3. mar 2001

Fundur um útgáfumál sagnfræðinnar

Fimmtudaginn 15. mars stendur Sagnfræðingafélagið fyrir spjallfundi um útgáfumál greinarinnar í húsi Sögufélags í Fischersundi. Fundurinn hefst kl. 20:30.

Tilgangur fundarins er að fá sem flesta sagnfræðinga til að velta fyrir sér stöðu útgáfumála greinarinnar í nútíð og framtíð. Hvernig gengur að gefa út hefðbundnar bækur og tímarit? Má búast við því að vöxtur hlaupi í vefútgáfur? Hafa möguleikar sagnfræðinga á (frjálsa) markaðnum aukist eða minnkað? Þetta eru meðal þeirra spurninga sem sjálfsagt brenna á mörgum.

Frummælendur munu aðeins tala í 5-7 mínútur hver og fyrst og fremst segja frá stöðunni innan "sinnar" útgáfu eða sviðs, en einnig hvað þeir telji að framtíðin beri í skauti sér. Röð frummælenda verður sem hér segir:

  • Örn Hrafnkelsson - Söguspekingastifti
  • Sigurður Gylfi Magnússon - Sýnisbækur íslenskrar alþýðumenningar & ATVIK
  • Anna Agnarsdóttir - Heimildasafn Sagnfræðistofnunar
  • Guðmundur Hálfdanarson - Ritsafn Sagnfræðistofnunar
  • Gunnar Karlsson - Studia Historica - Sagnfræðistofnun
  • Guðmundur J. Guðmundsson - Sögufélagið
  • Sumarliði Ísleifsson - Sagnfræðingar á (frjálsa) markaðnum
  • Már Jónsson - Heimildastofnun Íslands (heimildir.is)
  • Björgvin Sigurðsson - Rafbækur og netútgáfur

Á eftir framsögunum verða almennar umræður. Ragnheiður Þorláksdóttir sér um veitingarnar. Fjölmennum!


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is