mánudagur, 12. feb 2001

"Saga og saga"

Fimmtudaginn 22. febrúar heldur Einar Már Guðmundsson erindi á kvöldfundi Sagnfræðingafélagsins sem hann nefnir "Saga og saga". Fundurinn fer fram í húsi Sögufélags við Fischersund og hefst kl. 20:30.

Í erindi sínu mun hann velta fyrir sér muninum á "sagnfræði" og "skáldskap", m.a. með vísan til nýjustu verka sinna, bókanna "Fótspor á himnum" og "Draumar á jörðu". Í nýlegu viðtali í Degi (30. des.) fullyrti Einar Már: "[S]umar bækur eru þannig að við getum ekki hugsað okkur lífið án þeirra. Þannig verður skáldskapurinn með tímanum sannleikur, eins öfugsnúið og það kann nú að hljóma." Hann mun gera þennan "öfugsnúning" að umtalsefni og einnig varpa fram þeirri spurningu, hvort sagnfræðirit séu í aðra röndina skáldsögur.

Það hlýtur að vera mikill fengur að því fyrir sagnfræðinga að fá einn helsta rithöfund þjóðarinnar á sinn fund til að reifa svona mikilvæg mál. Fólk er því hvatt til að merkja við þennan dag í dagatölunum sínum.


Þessi síða

Um félagið

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt. Félagið stendur reglulega fyrir opnum félagsfundum, ráðstefnum, og ýmsum fagtengdum fundum.

Póstfang félagsins er:
Sagnfræðingafélag Íslands
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
IS-107 Reykjavík

Einnig má hafa samband við Unni Birnu Karlsdóttur, formann Sagnfræðingafélagsins, í gegnum tölvupóstfangið unnur[hjá]skjalasafn.is

About the Association

The Icelandic Association of Historians can be contacted through Unnur Birna Karlsdóttir: unnur[hjá]skjalasafn.is or via telephone: +354-891-9979.

Leit á þessari síðu


RSS slóð á greinar. RSS slóð á ummæli.

Knúið af WordPress. Rétt XHTML & CSS.

Fótur

Sagnfræðingafélag Íslands - Sími: 866-3131 - Tölvupóstur: unnur[hjá]skjalasafn.is